Viðskipti erlent

Apple stendur frammi fyrir risavöxnum reikningi vegna ógreiddra skatta

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Höfuðstöðvar Apple á Írlandi.
Höfuðstöðvar Apple á Írlandi. Vísir/Getty
Bandaríski tæknirisinn Apple þarf mögulega að greiða milljarða evra vegna ógreiddra skatta á Írlandi. Dómur í málinu verður kveðinn upp á morgun.

Samkeppnisyfirvöld í Evrópusambandinu hafa undanfarin þrjú ár rannsakað skattamál Apple á Írlandi. Samkvæmt lögum ESB er óheimilt að veita völdum fyrirtækjum skattaívilnanir en búist er við að bæði yfirvöld í Írlandi og Apple muni áfrýju niðurstöðinni eftir að hún berst.

ESB telur að úrskurðir írskra yfirvalda frá 1991 og 2007 geri Apple kleyft að lágmarka skattgreiðslur sína á Írlandi. Fyrirtækið nýtir sér þetta fyrirkomulag með því að beina stórum hluta tekna af alþjóðlegri sölu á vörum sínum í gegnum Írland.

Bandarísk yfirvöld hafa harðlega gagnrýnt stofnanir ESB fyrir að sækja svo hart að Apple. ESB hefur þó undanfarin ár einbeitt sér að því að tryggja að stórfyrirtæki greiði réttar upphæðir í skatta en á síðasta ári var Starbucks skipað að greiða til baka 30 milljónir evra í Hollandi vegna ógreiddra skatta.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×