Hagnaður Landsbankans dregst saman Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 11. ágúst 2016 16:19 Niðurstöður hálfs árs uppgjörs bankans voru kynntar í dag. Vísir
Afkoma Landsbankans var jákvæð um 11,3 milljarða króna eftir skatta á fyrri helmingi ársins 2016 samanborið við 12,4 milljarða króna hagnað á sama tímabili árið 2015. Niðurstöður hálfs árs uppgjörs bankans voru kynntar í dag. Hreinar vaxtatekjur voru 17,6 milljarðar króna og hækkuðu um níu prósent á milli tímabila. Hreinar þjónustutekjur námu 3,9 milljörðum króna og hækkuðu um 14,7 prósentum frá sama tímabili árið áður. Virðisbreytingar hækkuðu um 0,4 milljarða króna á milli ára. Aðrar rekstrartekjur námu 4,4 milljörðum króna samanborið við 7,3 milljarða króna ári fyrr og skýrist lækkunin aðallega af minni hagnaði af hlutabréfum. Arðsemi eigin fjár á tímabilinu var 8,6 prósent á ársgrund¬velli samanborið við 10,4 prósent á sama tímabili 2015. Rekstrartekjur á fyrri helmingi ársins námu 28,2 milljörðum króna samanborið við 28,8 milljarða króna á sama tímabili árið 2015. Rekstrarkostnaður hækkaði um 1,6 prósent á milli ára. Launakostnaður hækkaði í takt við kjarasamninga en annar rekstrarkostnaður bankans lækkaði um 4,5 prósent á milli tímabila. Heildareignir bankans í lok júní voru um 1.110 milljarðar króna samanborið við 1.173 milljarða króna ári fyrr og hefur því efnahagur bankans dregist saman um rúm fimm prósent síðasta árið. Á aðalfundi bankans í apríl var ákveðið að greiða hluthöfum samtals 28,5 milljarða króna í arð og var eigið fé bankans 247,3 milljarðar króna í lok júní.
Mest lesið Húsið sem næstum gleymdist: „Eins og kýlt í hjartað á mér“ Atvinnulíf Moldrík með ADHD: Hafa getuna til að horfa út fyrir boxið Atvinnulíf Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu Viðskipti innlent „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Viðskipti innlent Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Viðskipti innlent Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn Atvinnulíf Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Viðskipti erlent Nvidia metið á 615 billjónir króna Viðskipti erlent Fleiri fréttir Tækifæri í vátryggingakerfi til að draga úr verðbólgu „Vefveiðar eru ekki tæknivandamál, þær eru mannlegt vandamál“ Markaðurinn tók tíðindunum vel Töldu nauðsynlegt að taka stærra skref en lutu í lægra haldi Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Engar fækkanir fyrirhugaðar fari kaupin í gegn Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Árni nýr stjórnarformaður Íslandsstofu Brimgarðar kaupa tíu milljónir hluta í Reitum SKE gert afturreka með ógnarlanga stefnu og kærir til Landsréttar „Eins rangt og það getur orðið“ að bankarnir hafi stungið lækkun í vasann Gagnaver gæti hitað upp hús Bolvíkinga Ríteil Kids hættir rekstri Bankaskatturinn á að skila sex milljörðum í ríkissjóð „Við erum ekkert æst í að fá nýjan skatt“ Loka bráðum á 3G-kerfið Sigurjón fékk heiðursverðlaun SVEF Bein útsending: Ársfundur SFS - Tækifæri á flekaskilum Kemi og Fálkinn Ísmar sameinast Breytingar á stjórn Sýnar Vill fresta atkvæðagreiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun Þrotabú Wow air verður af hundruðum milljóna króna Ingunn nýr innri endurskoðandi borgarinnar Jóhann Már verður framkvæmdastjóri Wolt á Íslandi Innleiða verði „einhvers konar verðþak á olíu“ Vaxtahækkun í maí blasi við Sjá meira