Sleppur með lágmarksrefsingu fyrir nauðgun: „Mjög pirraður út í helvítis tíkina“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. ágúst 2016 15:21 Austin James Wilkerson var nemi í University of Colorado en hann var rekinn úr skólanum vegna nauðgunarmálsins. vísir
Austin James Wilkerson 22 ára nemi í University of Colorado í Bandaríkjunum var í liðinni viku fundinn sekur um að nauðga 19 ára stúlku í mars 2014. Hann hlaut þó afar vægan dóm vegna glæpsins en málið hefur vakið nokkra athygli í Bandaríkjunum enda þykir því svipa mjög til annars nauðgunarmáls í bandarískum háskóla sem dæmt var í fyrr á þessu ári. Þá var Brock Turner dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir að nauðga stúlku á skólalóð Stanford-háskóla og vakti dómurinn mikla reiði. Wilkerson, sem braut gegn stúlkunni þegar hún var hjálparvana og hálfmeðvitundarlaus, hlaut tveggja ára dóm og 20 ár á skilorði. Refsingin felst í því að hann þarf að gista í svokölluðu sýslufangelsi í tvö ár en má sækja vinnu eða nám utan veggja þess. Í lögum er hins vegar heimild til að dæma menn sem gerast sekir um nauðgun í fjögurra til tólf ára fangelsisvistar í ríkisfangelsi. Dómaranum í málinu fannst hins vegar ekki rétt að gera það en fólk sem hefur framið minniháttar glæpi er frekar dæmt til refsingar í sýslufangelsum í Bandaríkjunum.Þóttist ætla að hjálpa henni en fór með hana á afvikinn stað og braut á henni Kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að Wilkerson hefði brotið kynferðislega gegn stúlkunni en saksóknarar sögðu hann hafa farið með hana á afvikinn stað og nauðgað henni þar sem hún var hálfmeðvitundarlaus. Áður en Wilkerson fór með henni hafði hann sagt vinum sínum að hann ætlaði að hugsa um hana þar sem hún var ekki í góðu ástandi. Á endanum viðurkenndi Wilkerson að hafa haft mök við stúlkuna á meðan hann fékk ekki mikil viðbrögð frá henni, eins og það er orðað í umfjöllun Guardian um málið. Saksóknarar segja niðurstöðuna mikil vonbrigði enda höfðu þeir krafist þess að Wilkerson yrði dæmdur til fangelsisvistar. „Þetta hjálpar okkur ekki í baráttunni gegn einum versta glæp kynbundins ofbeldis í samfélaginu. Árið 2016 eigum við ennþá mikla vinnu óunna,“ segir Caryn Datz einn af saksóknurum í málinu. Í máli saksóknaranna kom fram að Wilkerson hefði ekki aðeins þóst ætla að hjálpa stúlkunni heldur sendi hann vinkonu hennar skilaboð eftir að hann misnotaði hana þar sem hann kvaðst hafa aðstoðað stúlkuna og vinkonan þakkaði honum fyrir. Stúlkan var, líkt og Wilkerson, nemandi í University of Colorado, en hún var á fyrsta ári. Reyndi við hana en hún vildi ekkert með hann hafa Þá sagði Wilkerson rannsakanda sem kom að málinu fyrir hönd háskólans að hann hefði reynt við stúlkuna allt kvöldið en hún ekkert viljað með hann hafa. Hann sagðist hafa verið „mjög pirraður út í helvítis tíkina,“ að sögn saksóknara. Hann hefði síðan viðurkennt glæpinn fyrir vinum sínum og fyrir rannsakendum áður en réttarhöldin hófust en breytti framburði sínum fyrir dómi. „Ákærði nauðgaði hjálparvana stúlku... reyndi að hylma yfir glæpinn, og laug síðan ítrekað um hvað hann gerði, meðal annars fyrir dómi,“ skrifuðu saksóknarar í greinargerð. Áður en dómurinn var kveðinn upp sagði dómarinn að hann hefði átt í miklum vandræðum með að ákveða refsinguna. „Ég hef átt í erfiðleikum með spurninguna „Á ég að dæma hann til fangelsisvistar?“ Ég veit að það er ekki nein frábær niðurstaða fyrir neinn. Wilkerson á skilið refsingu en ég held að við þurfum öll að átta okkur hvort hann geti í raun notið endurhæfingar eða ekki,“ sagði dómarinn og kvað svo upp dóm sinn.
Tengdar fréttir Stanford-nauðgarinn: „Ég gerði mistök, ég drakk of mikið“ Brock Turner, sem dæmdur var í sex mánaða fangelsi í liðinni viku fyrir að nauðga meðvitundarlausri konu á bak við ruslagám á skólalóð Stanford-háskóla í janúar í fyrra, virðist að litlu sem engu leyti taka ábyrgð á gjörðum sínum umrædda nótt. 9. júní 2016 11:04 Stanford-nauðgunin: Sáu strax að eitthvað væri að þegar þeir nálguðust ruslagámana á skólalóðinni Sænsku stúdentarnir Carl-Fredrik Arndt og Peter Jonsson voru að hjóla í gegnum skólalóð Stanford-háskóla aðfaranótt 18. janúar 2015 þegar þeir komu auga á Brock Turner á bak við ruslagám þar sem hann lá ofan á hreyfingarlausri konu. 8. júní 2016 14:24 Sex mánaða nauðgunardómur vekur reiði: „Vegna þín fannst mér ég einskis virði“ Brock Turner var nemandi í Stanford-háskóli þegar hann nauðgaði konu á bak við ruslagám á skólalóðinni í janúar í fyrra. 7. júní 2016 14:42 Mest lesið Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Innlent Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Innlent Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ Innlent „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Innlent Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Innlent Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Innlent „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Innlent „Við höfum ekki séð þetta á Íslandi áður“ Innlent Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa Innlent Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Kosningasjónvarp Stöðvar 2 Alls konar dýnamík geti komið inn við myndun tveggja turna Beið í klukkustund eftir að fá að kjósa „Galið! Kosningar eru greinilega ekki fyrir öll!“ Mætti á kjörstað en fékk þau svör að hún væri búin að kjósa Ráðinn slökkviliðsstjóri á Suðurnesjum Skipuð í embætti fiskistofustjóra Kjörsókn utankjörfundar minni en 2020 Sársvekktur að hafa ekki getað kosið í Mývatnssveit Allt um æsispennandi forsetakosningar og leik ársins í fótboltanum Skili embættinu þannig að nýr forseti og þjóðin geti vel við unað Kosningarnar þær mest spennandi síðan 1980 Veðurspá slæm fyrir vikuna og bændur hvattir til að huga að búfénaði Slasaðist á buggy-bíl í Básum í Goðalandi Bláa lónið opnar aftur á morgun Sjómannadagsfjör á Skagaströnd Margir góðir frambjóðendur í boði Jón Gnarr mjög bjartsýnn: „Fyrsti krúnurakaði rauðhærði forsetinn“ „Held ég fari bara að sofa upp úr miðnætti“ Rolluhótel sárabót fyrir að missa gistiheimilið „Væta í minni sveit boðaði heldur betur grósku“ „Unga fólkið er klárlega að velja okkar framboð“ Kjörsókn víða ívið betri en í síðustu kosningum Fékk „gríðarlega góð“ viðbrögð eftir kappræðurnar Fólk kasti atkvæði sínu á stríðsbálið „Ég held að þetta verði mjög spennandi“ Forsetavaktin: Sjöundi forseti lýðveldisins verður kjörinn Tívolíbomba hefði getað skapað stórhættu Ólík sýn á hvort Ísland eigi að styðja vörn Úkraínumanna „Við útrýmum ekki ofbeldi með hatri“ Sjá meira
Stanford-nauðgarinn: „Ég gerði mistök, ég drakk of mikið“ Brock Turner, sem dæmdur var í sex mánaða fangelsi í liðinni viku fyrir að nauðga meðvitundarlausri konu á bak við ruslagám á skólalóð Stanford-háskóla í janúar í fyrra, virðist að litlu sem engu leyti taka ábyrgð á gjörðum sínum umrædda nótt. 9. júní 2016 11:04
Stanford-nauðgunin: Sáu strax að eitthvað væri að þegar þeir nálguðust ruslagámana á skólalóðinni Sænsku stúdentarnir Carl-Fredrik Arndt og Peter Jonsson voru að hjóla í gegnum skólalóð Stanford-háskóla aðfaranótt 18. janúar 2015 þegar þeir komu auga á Brock Turner á bak við ruslagám þar sem hann lá ofan á hreyfingarlausri konu. 8. júní 2016 14:24
Sex mánaða nauðgunardómur vekur reiði: „Vegna þín fannst mér ég einskis virði“ Brock Turner var nemandi í Stanford-háskóli þegar hann nauðgaði konu á bak við ruslagám á skólalóðinni í janúar í fyrra. 7. júní 2016 14:42