Skoðanir, álit eða lög? Valdimar Guðjónsson skrifar 20. júlí 2016 07:00 Hefðbundinn júlí. Blíða. Lognmolla. Gúrka. Þá er aðeins eitt í stöðunni hjá Samkeppniseftirliti. Sleppa djúpsprengjunum. Hamast í MS. Kemst örugglega vel í fréttirnar nú að loknu EM. Allir raðast inn í réttri röð. 1. Forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Sekt MS hækkuð. Líkurnar á að hann verði ekki enn á ný afturreka hjá áfrýjunarnefnd samkeppnismála, á að giska fimm prósent. 2. Óli í Mjólku dúkkar upp. Ekki að þakka fyrir lánið á mjólkurbílnum. (Já, MS lánaði honum mjólkurbíl að sækja mjólk. Voru ekki verri við hann en svo. ) 3. Að sjálfsögðu háskólakennarinn óhittni (Icesave, evru-draumalandið) Þórólfur Matthíasson með grein. Það er skringileg nálgun RÚV og 365 kringum úrskurði Samkeppniseftirlitsins. Farið er með „álitin“ frá þessu svokallaða eftirliti líkt og lokadóma Hæstaréttar og að nokkur hundraða blaðsíðna langlokurnar, séu meitlaðar í stein á Síneafjalli. Vissulega frétt, en ein af fyrstu spurningum sæmilega hugsandi fjölmiðlunga væri hvað væri nú breytt? Hvað sé öðruvísi frá því þegar sömu niðurstöður Páls Gunnars Pálssonar í máli gegn MS voru gerðar afturreka fyrir stuttu og sektarálagning endurgreidd að fullu með vöxtum. Það er langt gengið þegar stofnanir ríkisins telja sig æðri gildandi lögum. Sem sagt dæmi mörg hundruð milljóna sektir vegna eigin skoðana (ríkisstofnunarinnar) en fráleitt samkvæmt gildandi lögum. Þannig var í raun niðurstaðan síðast. Síðan er hin hliðin auðvitað sú að hverjum eru eigin skoðanir frjálsar. Líka um lög landsins. Það má. En þá blasir líka við að fyrrgreindur forstöðumaður er á röngum stað. Hann á betur heima þar sem lögin eru sett. Hugsanlega er sá vinnustaður að gjalda fyrir hrikalega lágt skor á ánægjuvoginni. Alþingi fær ekki inn fólkið með stóru skoðanirnar vegna allra leiðindanna. Menn eins og forstjórann. Hafi eitthvað breyst (sem ekki hefur komið fram) er það slæmt og MS þarf að vanda sig betur. Ekki skal gert lítið úr því hér. Sé ekki svo telst hér tilefnislaus blekkingarleikur. Líkt og ótal margt í fjölbreyttum iðnaði sem Íslendingar bjástra við nýtur MS og íslenskur mjólkuriðnaður aðdáunar bæði sérfróðra í mjólkurgeiranum og neytenda erlendis. Undrast margir breitt vöruúrval og almenn gæði á ekki stærra markaðssvæði. Slíkt fæst einungis með góðu hráefni og hæfu starfsfólki. Verð til neytenda er fyllilega sambærilegt við nágrannalöndin hér í Norður-Evrópu og víðar. Kannanir Eurostat viskubanka ESB, staðfesta það.Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 20. júlí Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Dagur Jónsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar