Umfjöllun, viðtöl og myndir: Breiðablik - ÍBV 2-3 | Endurkomusigur Eyjamanna skilaði þeim í undanúrslit Kristinn Páll Teitsson á Kópavogsvelli skrifar 3. júlí 2016 17:15 Úr leik liðanna í dag. vísir/eyþór
Eyjamenn unnu magnaðan 3-2 endurkomusigur á Blikum á Kópavogsvelli í 8-liða úrslitum Borgunarbikarsins í kvöld en eftir að hafa lent 0-2 undir sneru Eyjamenn leiknum sér í hag með þremur mörkum á tíu mínútum. Blikar náðu tveggja marka forskoti í upphafi seinni hálfleiks eftir að hafa skorað mark sitt hvoru megin við hálfleikinn, það fyrra eftir glæsilega rispu frá Gísla Eyjólfssyni. Það tók Eyjamenn hinsvegar aðeins sjö mínútur að jafna metin en þar voru að verki Hafsteinn Briem og Simon Smidt eftir góðar sendingar frá Aroni Bjarnasyni. Eyjamenn fullkomnuðu endurkomuna með þriðja markinu stuttu síðar en þar var að verki Smidt eftir að hafa leikið á varnarmann Blika og skorað með föstu skoti í hornið. Blikar reyndu að breyta til og bæta sóknarleikinn síðasta hálftímann en þrátt fyrir ágætis pressu gekk leikmönnum liðsins illa að skapa færi og náðu fyrir vikið ekki að jafna metin í tæka tíð.Afhverju vann ÍBV? Eyjamenn höfðu lítið skapað sér fram að marki Hafsteins á upphafsmínútum seinni hálfleiks en það mark virtist vekja von í brjósti leikmanna liðsins. Sjö mínútum síðar höfðu Eyjamenn bætt við tveimur mörkum og voru búnir að snúa leiknum sér í hag en það virtist slá Blika af laginu. Derby Carillo í marki Eyjamanna hafði það nokkuð náðugt í leiknum því varnarmenn liðsins gáfu fá færi á sér og var allt liðið að verjast sem eitt.Þessir stóðu upp úr Í liði heimamanna var Gísli Eyjólfsson manna sprækastur á miðjunni, hann kom Blikum yfir og ógnaði oft með hlaupum af miðjunni inn í vítateig Eyjamanna. Arnþór Ari Atlason var öflugur fyrstu mínúturnar eftir að hafa komið inn af varamannabekknum en minna sást til hans eftir því sem leið á seinni hálfleikinn. Í liði ÍBV átti Simon Smidt frábæran leik í seinni hálfleik en stærstan hluta fyrri hálfleiks var hann að velta sér upp úr dómgæslunni og pirra sig á óþarfa hlutum. Þá stóð miðvarðapar Eyjamanna, Avni Pepa og Hafstenn Briem, vakt sína með prýði en fyrir utan nokkrar rispur Blika upp vinstri kantinn náðu Blikar lítið að ógna marki Eyjamanna.Hvað gekk illa? Liðunum gekk illa að skapa færi framan af og var í raun ekkert sem benti til þess að Blikar væru betra liðið þegar Arnór Sveinn Aðalsteinsson kom Blikum í 2-0. Eftir þriðja mark Eyjamanna gátu þeir leyft sér að falla aftar á völlinn og fátt um fína drætti í sóknarleik liðanna síðasta hálftímann. Blikar fengu margoft í leiknum góð færi til að senda boltann fyrir markið en fyrirgjafirnar voru ekki að rata á réttan mann og skilaði skipting Arnars Grétarssonar að senda Jonathan Glenn inná litlu.Hvað gerist næst? Blikar eiga erfiðan leik gegn Jelgava í Lettlandi í undankeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn þar sem liðið þarf að vinna eftir að hafa tapað heimaleiknum 2-3 á dögunum. Eyjamenn komust aftur á sigurbraut í dag eftir tvo tapleiki í röð en næsti leikur liðsins er gegn Val eftir rúma viku en stuðnings- og leikmenn liðsins geta beðið spenntir eftir undanúrslitaleiknum í bikarnum. Bjarni Jó: Það er bikarfiðringur í liðinu„Það er bara ótrúlega vel gert að ná að vinna sig aftur inn í leikinn eftir að hafa lent 2-0 undir á þessum erfiða útivelli,“ sagði Bjarni Jóhannesson, þjálfari ÍBV, sigurreyfur eftir leikinn. „Markið hjá Hafsteini kveikir í okkur og við vorum gríðarlega öruggir í öllum aðgerðum eftir það. Við náðum að snúa þessu okkur í hag og vinna Stjörnuna á útivelli, það er greinilega bikarfiðringur í okkur.“ Bjarni var ósáttur með spilamennsku liðsins framan af. „Við gerðum þeim auðvelt fyrir í fyrri hálfleik, þeir pressuðu okkur og eyddu púðri í það og bestu færin þeirra komu eftir sendingar frá okkur. Við vorum ósáttir með það og fengum svo kjaftshögg í upphafi seinni en við héldum bara áfram.“ Eyjamönnum gekk betur að loka á sóknir Blika eftir því sem leið á leikinn. „Við vissum að við þyrftum að vera þolinmóðir í dag. Það er mikið álag á Blikum þessa stundina, þeir spiluðu erfiðan leik á fimmtudaginn þar sem þeir þurftu að vinna upp forskot og við ætluðum okkur að nýta okkur það. “ Hafsteinn: Höfum oft brotnað við að lenda undir„Sem betur fer náði ég og við að svara fyrir fyrsta markið, það var hreint út sagt slakur varnarleikur hjá okkur,“ sagði Hafsteinn Briem, miðvörður ÍBV, sáttur að leikslokum. Hafsteinn leit ekkert sérstaklega vel út í fyrsta marki Blika en hann bætti upp fyrir það þegar hann kom ÍBV á bragðið og minnkaði muninn. „Við vorum aðeins of kaldir á boltanum, sérstaklega í fyrra markinu en við töluðum saman um að bæta það í hálfleik. Við fáum á okkur reyndar mark strax en svo settum við allt í gang, unnum okkur aftur inn í leikinn og áttum sigurinn skilið.“ Eyjamenn sýndu mikinn karakter og héldu áfram að berjast eftir að hafa lent 0-2 undir á upphafsmínútum seinni hálfleiks. „Við höfum oft brotnað undir þessum kringumstæðum og ekki náð að vinna okkur aftur inn í leikina en við sýndum mikinn karakter í dag. Við þurfum að halda áfram á þessari braut og þá er aldrei að vita hvernig það endar,“ sagði Hafsteinn en þetta er annað árið í röð sem ÍBV kemst í úrslit bikarsins. „Í fyrra komumst við líka í undanúrslitin en við runnum á rassinn þegar á hólminn var komið. Allur hópurinn er staðráðinn í að gera betur núna.“ Oliver: Menn verða að geta tekið því að fá á sig mark og rifið sig í gang„Eins og eftir flesta tapleiki heyrðist ekki orð inn í búningsklefanum eftir leikinn,“ sagði Oliver Sigurjónsson, leikmaður Blika, aðspurður hvernig stemmingin hefði verið í klefanum eftir að Blikar glutruðu niður 2-0 forskoti gegn ÍBV. „Ég ætla ekki að vera að henda einhverjum afsökunum fram, þetta er einfaldlega ekki nógu gott. Ég get nefnt hundrað afsakanir en við fáum á okkur þrjú mörk á tíu mínútum og þú vinnur ekki marga leiki þannig.“ Oliver var ósáttur með það hvernig Blikar brugðust við mótlætinu. „Menn verða að geta tekið því að fá á sig mark og rifið sig í gang. Þegar við skorum annað markið er sjálfstraustið lítið hjá þeim og við með yfirhöndina í leiknum en við spilum ekki nægilega vel úr því,“ sagði Oliver og bætti við: „Kannski áttum við ekki að fara í að reyna að bæta við þriðja markinu og fara frekar í það að þétta okkur og reyna að drepa leikinn. Kannski er það sem við þurfum að læra betur.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Schauffele heldur forystunni en Tiger langt frá niðurskurðinum Golf Rekinn tveimur dögum eftir bikarmeistaratitilinn Fótbolti Klopp myndi kjósa með afnámi VAR Fótbolti Valsmenn síðastir inn í átta liða úrslit Fótbolti Kristinn: Varnarleikur, varnarleikur og varnarleikur Körfubolti Tíunda tapið í röð hjá Íslendingaliði Balingen Handbolti Jóhann: Brotnuðum auðveldlega Körfubolti Van Dijk með þrennu og Diljá tvennu í stórsigri Leuven Fótbolti Southampton leikur um laust sæti í ensku úrvalsdeildinni Fótbolti Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Körfubolti Fleiri fréttir Bikarmeistarar Víkings í næstu umferð ásamt Keflavík og Fylki Uppgjör: Stjarnan - KR 5-3 | Endurkoma KR-inga hófst of seint gegn Stjörnunni Margrét Lára: Mér finnst hún hafa verið stórkostleg „Sá að þeim leið aldrei illa“ Uppgjörið og viðtöl: Fylkir - Breiðablik 0-2 | Blikar enn með fullt hús Uppgjörið: Þróttur - Víkingur 0-1 | Þróttarar enn án sigurs Illa orðað samningsákvæði varð KA að falli Albert gáttaður á Lárusi Orra: „Hvað meinarðu? Hvað er í gangi hérna?“ „Þegar við skorum að þá er gaman“ „Þetta var eins og handboltaleikur“ „Fórum af bensíngjöfinni í staðin fyrir að gefa í” Uppgjör og viðtöl: Stjarnan - FH 4-3 | Markasúpa í Garðabænum Uppgjör og viðtöl: Þór/KA - Keflavík 4-0 | Heimakonur ekki í vandræðum Uppgjör, viðtöl og myndir: Valur - Tindastóll 3-1 | Meistararnir lentu undir en komu til baka KA dæmt til að greiða Arnari tæpar ellefu milljónir Heiðruðu mömmur leikmanna á sérstakan hátt „Ef KR-ingar vita að Óskar sé til í að koma, skiptir einhverju máli hvað Gregg gerir?“ „Búinn að vera tilfinningarússibani“ „Til skammar að koma úr atvinnumennsku eins og hann er að koma“ Sjáðu rauðu spjöld KR-inga, mark beint úr horni og öll hin mörkin í gær „Það er eitt að vera góður og annað að fá eitthvað fyrir það“ Uppgjörið og viðtöl: Víkingur R. - FH 2-0 | FH fatast flugið en Víkingur aftur á beinu brautinni Uppgjör: Fylkir - Breiðablik 0-3 | Öruggur sigur Blika á lánlausum Fylkismönnum Uppgjör: KR-HK 1-2 | Frækinn sigur HK á Meistaravöllum Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Patrick til bjargar eftir klúður Gylfa og klaufamörk á Akranesi Uppgjörið: Valur - KA 3-1 | Vítaklúður Gylfa kom ekki að sök Uppgjörið: ÍA - Vestri 3-0 | Öruggt hjá ÍA í slag nýliðanna Sjáðu frábært spil skila tveimur mörkum í Garðabæ „Við erum helvíti seigir“ Sjá meira
Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Körfubolti
Uppgjör, myndir og viðtöl: Valur - Grindavík 89-79 | Valsmenn leiða í baráttunni um Íslandsmeistaratitilinn Körfubolti