Hundrað og fimmtíu leiguíbúðir byggðar á næstu fjórum árum Sæunn Gísladóttir skrifar 5. júlí 2016 16:16 Frá vinstri: Rannveig Einarsdóttir sviðsstjóri fjölskylduþjónustu Hafnarfjarðarbæjar, Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri og Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ. Mynd/Hafnarfjarðarbær
Hafnarfjarðarbær og Alþýðusamband Íslands hafa undirritað viljayfirlýsingu um uppbyggingu 150 leiguíbúða í Hafnarfiði. Verkefnið verður unnið á grundvelli laga um almennar leiguíbúðir sem samþykkt voru á Alþingi 2. júní síðastliðinn. Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri í Hafnarfirði og Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambands Íslands undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um byggingu íbúðanna á næstu fjórum árum til að svara enn betur þörf á leigumarkaði, segir í tilkynningu. Unnið verður að uppbyggingunni í samræmi við samþykktir ASÍ og áherslur Hafnarfjarðarbæjar í húsnæðismálum. ASÍ vinnur þessa dagana að stofnun og fjármögnun húsnæðissjálfseignarstofnunar sem kemur til með að starfa á landsvísu. Hafnarfjarðarbær hefur þegar gefið félaginu, sem mun starfa í umboði ASÍ, vilyrði fyrir úthlutun á lóðum fyrir uppbyggingu 150 almennra leiguíbúða. Markmiðið er að afhenda lóðir fyrir 32 íbúðir á yfirstandandi ári, 28 íbúðir árið 2017, 45 íbúðir árið 2018 og 45 íbúðir árið 2019. Ráðgert er að úthlutun 2016 nái til Hraunskarðs 2-4-6-8 og Hádegisskarðs 4-6. Gert er ráð fyrir þeim möguleika að hluti íbúðanna muni rísa sem hluti af verkefnum við þéttingu byggðar í Hafnarfirði. Fjölskylduþjónusta Hafnafjarðarbæjar mun hafa ráðstöfunarrétt yfir 25% íbúða sem byggðar verða samkvæmt viljayfirlýsingunni. Sameiginleg verkefnisstjórn skipuð aðilum frá Hafnarfjarðarbæ og ASÍ mun vinna að framgangi verkefnis næstu vikur og mánuði.
Mest lesið Skamma og banna Play að blekkja neytendur Neytendur Isavia braut lög á Keflavíkurflugvelli Neytendur Nýtt trend: Sami stjórnandinn að vinna fyrir mörg fyrirtæki Atvinnulíf Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Sjá meira