Sprengisandsleið opnast mun fyrr en í meðalári Kristján Már Unnarsson skrifar 29. júní 2016 23:14 Sprengisandur er hæsti hálendisvegur Íslands. Mynd/Stöð 2.
Leiðin um Sprengisand er orðin fær, bæði um Bárðardal og Skagafjarðarleið. Eyjafjarðarleiðin upp á Sprengisand er hins vegar enn lokuð. Þetta er níu dögum fyrr en í meðalári sem Sprengisandur opnast en sjaldgæft er að þessi helsta hálendisleið landsins sé akfær fyrir lok júnímánaðar. Undanfarin fimm ár hefur hún að meðaltali opnast 7. júlí.Frá Sprengisandsleið við Tómasarhaga. Skammt frá eru gatnamótin inn á Gæsavatnaleið.Stöð 2/Sveinn Arnarsson.Kjalvegur og Kaldadalsvegur höfðu áður opnast, einnig Landmannaleið. Þá er Öskjuleið orðin fær og einnig Kverkfjallaleið. Leiðirnar að Fjallabaki eru enn ófærar, bæði Fjallabaksleið nyrðri og Fjallabaksleið syðri. Þá er leiðin að Lakagígum lokuð. Á Vestfjörðum eru allir fjallvegir orðnir færir, þar á meðal Þorskafjarðarheiði. Norðanlands er orðið fært inn á Flateyjardal en ófært er í Fjörður. Upplýsingar um ástand fjallvega má sjá á hálendiskorti Vegagerðarinnar. Tekið skal fram að þótt hálendisvegir séu sagðir færir á það yfirleitt aðeins við um jeppa og fjórhjóladrifsbíla og gildir í sumum tilvikum aðeins um öfluga jeppa.Við gatnamót Gæsavatnaleiðar og Sprengisandsvegar við Tungnafellsjökul.Stöð 2/Sveinn Arnarsson.
Mest lesið Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Högnuðust um hálfan annan milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Sjá meira