Síldarvinnslan ræðst í stórátak í öryggismálum fyrirtækisins Svavar Hávarðsson skrifar 2. júní 2016 07:00 Tekið verður á öryggismálum í vinnsluhúsum jafnt sem skipum. Mynd/KristínHávarðsdóttir
Innleiðing á nýju öryggiskerfi stendur yfir hjá Síldarvinnslunni í Neskaupstað. Markmiðið er að byggja upp öryggismenningu hjá fyrirtækinu þar sem hættur eru stöðugt greindar og lausnir innleiddar og endurbættar eftir því sem tækni, veiðum og vinnslu fleygir fram. Guðjón B. Magnússon, nýr öryggisstjóri fyrirtækisins, leiðir vinnuna. „Þetta er langtímaverkefni sem stendur og fellur með þátttöku starfsmanna og stjórnenda á hverjum vinnustað“, segir Guðjón í frétt á heimasíðu fyrirtækisins. „Í þessu sambandi skiptir breytt hugarfar og ekki síður breytt hegðun miklu máli – markmiðið er að byggja upp öryggisvenjur sem skila árangri. Það er ljóst að það tekur tíma og orku að byggja upp öryggismenningu, en bæði rannsóknir og reynsla sýna hvað það skilar miklum árangri.“ Minnt er á slysa- og dánartíðni sjómanna í dag og hvers konar árangur næst þegar gengið er skipulega fram í að auka öryggi og öryggisvitund. Ákvörðun var tekin um að gera ráðstafanir til að bæta öryggi sjómanna og nú eru alvarleg slys á sjó mjög fátíð miðað við það sem áður var. Slysatíðni í fiskiðnaði er hins vegar enn allt of há en flest stóru sjávarútvegs- og fiskvinnslufyrirtækin hafa ráðið öryggisstjóra til starfa og eru að stórauka áherslu á öryggismál. Búið er að gera drög að nýjum áhættugreiningum í fiskiðjuverinu í Neskaupstað. Þar er lögð áhersla á nýliðafræðslu og talsverðar breytingar verða gerðar á búnaði og vinnuaðstöðu til að auka öryggi. Reynslan úr fiskiðjuverinu verður síðan nýtt við innleiðingu kerfisins í öðrum starfsstöðvum og skipum fyrirtækisins, segir í fréttinni.Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 2. júní
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Sjá meira