Dominos í Bretlandi kaupir hlut í Dominos á Íslandi Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. júní 2016 09:24 Dominos á Íslandi selur frændum vorum á Norðurlöndunum pizzur.
Domino‘s í Bretlandi (Domino‘s Pizza Group), stærsta pizzukeðja Bretlands, hefur keypt hlut í rekstri Domino‘s á Íslandi, Noregi og Svíþjóð. Kaupverðið er sagt vera 24 milljónir punda. Það jafngildir rúmum 4 milljörðum króna. Breska fyrirtækið, sem er skráð í bresku kauphöllina, hyggst með fjárfestingunni taka þátt í fyrirhugaðri uppbyggingu Domino‘s keðjunnar á Norðurlöndunum en sérleyfi fyrir rekstri Domino‘s staða í Noregi, Svíþjóð og Færeyjum er í eigu íslenska fyrirtækisins Pizza-Pizza ehf. Viðskiptin munu ekki hafa nein áhrif á íslenska neytendur og fyrirtækið verður áfram í meirihlutaeigu íslenskra aðila. Í tilkynningu vegna viðskiptanna segir að með kaupunum innleysi íslenskir eigendur hluta af þeirri fjárfestingu sem lögð hefur verið í vöxt fyrirtækisins á Norðurlöndunum á undanförnum árum. Fyrirtækið er komið vel á veg með uppbyggingu Domino‘s í Noregi og hyggst á næstunni opna fyrstu Domino‘s staðina í Svíþjóð. Framtakssjóðurinn EDDA, sem rekinn er af verðbréfafyrirtækinu Virðingu, keypti fjórðungshlut í Domino‘s á Íslandi í mars í fyrra en EDDA er í eigu nokkurra lífeyrissjóða og annarra fagfjárfesta. EDDA selur, líkt og aðrir íslenskir hluthafar, part af sínum hlut í fyrirtækinu til Domino‘s Pizza Group í þessum viðskiptum. Stjórnendur verða hinir sömu eftir kaupin. Birgir Bieltvedt verður starfandi stjórnarformaður á þeim mörkuðum sem viðskiptin spanna. Birgir Örn Birgisson verður áfram forstjóri Domino’s Pizza á Íslandi og þá mun Agla Jónsdóttir, núverandi fjármálastjóri móðurfélags Domino‘s á Íslandi, taka að sér yfirfjármálastjórnun allra félaganna.
Mest lesið Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Samstarf Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Neytendur Fleiri fréttir Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk Sjá meira