Hvert fótspor er þrungið reynslu Skjóðan skrifar 8. júní 2016 10:00
Davíð Oddsson býðst til að bjarga þjóðinni frá sjálfri sér og Guðna Th. Jóhannessyni, sem ku vera hinn voðalegasti maður. Davíð og Mogginn segja okkur að hefði Guðni Th. verið valdamaður en ekki Davíð hefðu þorskastríðin tapast, sennilega kalda stríðið líka, við hefðum þurft að borga Icesave, Ísland hefði gengið í ESB og sennilega hefði allt efnahags- og fjármálakerfið hrunið. Svo lítur hann niður á þjóðina, en annars vitum við ekkert um þennan mann, segir Mogginn, og ekki lýgur hann. Það er eitthvað annað með Davíð Oddsson. Við vitum hvar við höfum hann. Hann er maðurinn sem einkavæddi tvo ríkisbanka og gætti þess að ekki hallaði á kaupendur sem voru að kaupa banka í fyrsta sinn. Kaupendur Landsbankans og Búnaðarbankans fjármögnuðu kaup sín með gagnkvæmum lántökum úr banka hins þannig að enginn þurfti að leggja mikið út. Að öðrum kosti er alveg óvíst að óreyndir kaupendur hefðu getað keypt sinn fyrsta banka. Bankakaupin minntu mest á það þegar Óli heitinn keypti Olís af Landsbankanum með yfirdrætti frá bankanum. Þegar útlendingar höfðu af því miklar áhyggjur að Icesave-reikningar Landsbankans væru kvikir og sköpuðu hættu fyrir bankann og íslenska fjármálakerfið fór Davíð til London og reyndi að útskýra fyrir þeim á sinni menntaskólaensku að engin hætta stafaði af Icesave. Heim kominn hafði hann af því mestar áhyggjur að ekki hefði honum tekist að eyða efasemdum útlendinga að fullu. Þegar Davíð Oddsson var forsætisráðherra fannst honum vextir Seðlabankans allt of háir, svo háir að þeir sköðuðu íslenskt atvinnu- og efnahagslíf. Svo varð hann seðlabankastjóri og skipti um skoðun. Hávaxtastefnan hlóð í snjóhengjuna sem við erum enn að kljást við. Útlendir peningar streymdu til landsins og eru í áratug búnir að safna himinháum vöxtum í boði Seðlabankans á kostnað íslensks atvinnulífs og almennings. Allir útlensku peningarnir sem komu hingað í skiptum fyrir krónur fóru beint út í íslensku bankana sem notuðu þá í útrásina. Þá var ekki skálað heldur hrópað ferfalt húrra fyrir Björgólfsfeðgum fyrir góða útrás. Vitanlega hefði verið hægt að gera eitthvað hundleiðinlegt við allan þennan gjaldeyri, eins og byggja upp gjaldeyrisforða Seðlabankans. Þá hefði kannski myndast viðspyrna fyrir Seðlabankann til að nota þegar harðnaði á dalnum. Það var hins vegar ekki gert því Seðlabankinn og íslensk stjórnvöld miðuðu stærð gjaldeyrisforða við landsframleiðslu en ekki stærð bankakerfisins. Þegar harðnaði á dalnum var Seðlabankinn bjargarlaus og varð í raun fjórði stóri bankinn til að falla. Eini seðlabankinn í heiminum sem varð tæknilega gjaldþrota í hinu alþjóðlega hruni 2008.Skjóðan skrifar í Markaðinn í Fréttablaðinu. Hún er frekju- og leiðindaskjóða, sem lætur ekkert mannlegt sér óviðkomandi.
Mest lesið Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Lögreglustjórinn: Segir pabbabrandara, elskar krimmasögur og segir húmor vanmetinn Atvinnulíf Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Sjá meira