Arðgreiðslur aukast milli ára Sæunn Gísladóttir skrifar 18. nóvember 2016 09:37 Velta í viðskiptahagkerfinu, að undanskilinni lyfjaframleiðslu, fjármála- og vátryggingastarfsemi, var um 3.700 milljarðar króna árið 2015. Fréttablaðið/GVA
Velta í viðskiptahagkerfinu, að undanskilinni lyfjaframleiðslu, fjármála- og vátryggingastarfsemi, var um 3.700 milljarðar króna árið 2015 samanborið við 3.400 milljarða króna árið 2014 og hækkaði því um 6,8 prósent á milli ára. Eigið fé jókst um rúmlega 16 prósent frá 2014 og var í lok árs 2015 um 2.600 milljarðar króna. Arðgreiðslur 2015 námu rúmlega 93 milljörðum króna sem er tæplega 8 milljarða króna aukning frá fyrra ári, eða tæplega níu prósent aukning, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Eiginfjárhlutfall var um 42 prósent í lok árs 2015 en það er um 4 prósent aukning frá fyrra ári. Þetta hlutfall hefur hækkað að meðaltali um 4 prósentustig á ári síðan 2008, en í lok þess árs var það um 13 prósent og árin þar á undan í kringum 30 prósent. Rekstrartekjur sjávarútvegsfyrirtækja voru 364 milljarðar króna (aukning um 4,1 prósent frá fyrra ári), fyrirtækja í einkennandi greinum ferðaþjónustunnar 479 milljarða króna (13 prósent aukning) og rekstrartekjur í framleiðslu málma 247 milljarðar króna (7 prósent aukning). Hagnaður sjávarútvegsfyrirtækja fyrir fjármagnsliði og skatta (EBIT) var um 65 milljarðar króna en samsvarandi hagnaður hjá ferðaþjónustugreinum var 40 milljarðar króna og þar af um 17 milljarðar í farþegaflutningum með flugi. Frá 2009 hefur launakostnaður ferðaþjónustugreina aukist um 51 milljarð króna á verðlagi 2015, sem er 100 prósent aukning. Á sama tíma hækkaði launakostnaður um 15 prósent í smásöluverslun og 19 prósent í málmframleiðslu og sjávarútvegi. Frá 2004 til 2015 hafa rekstrartekjur gististaða aukist um rúmlega 42 milljarða á verðlagi ársins 2015 eða ríflega þrefaldast. Árið 2015 voru rekstrartekjurnar 61 milljarður króna sem er 9.5 milljarða aukning á milli ára. Samhliða aukinni veltu hefur hagnaður í greininni aukist og var hagnaður fyrir fjármagnsliði tæplega 6 milljarða króna árið 2015, sem er aukning um tæplega 900 m illjónir króna frá árinu áður.
Mest lesið Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni Viðskipti innlent AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Viðskipti innlent Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf „Biðröðin er löng“ Viðskipti innlent Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Vá en æðislegt: Fundurinn fellur niður í dag! Atvinnulíf Fleiri fréttir Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Eldur segir Bandaríkjastjórn íhuga fjárfestingu og Amaroq tekur stökk S4S-veldið tekur við Lindex Nýr íslenskur rekstraraðili tekur við Lindex Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Bíllinn þremur milljónum dýrari Lindex lokað á Íslandi Sjá meira
AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Viðskipti innlent
AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Viðskipti innlent