Segir stjórn Frjálsa taka framboði fálega Óli Kristján Ármannsson skrifar 25. maí 2016 07:00 Ingvi Þór Georgsson hvetur félagsmenn í Frjálsa lífeyrissjóðnum til að láta sig varða málefni sjóðsins og mæta á aðalfund hans á morgun klukkan 17:15 í aðalstöðvum Arion banka í Borgartúni 19 í Reykjavík. vísir/vilhelm
Í fyrsta sinn í tvö ár standa fyrir dyrum kosningar í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins. Þær koma til vegna þess að Ingvi Þór Georgsson viðskiptafræðingur hefur boðið sig fram á móti tveimur sitjandi stjórnarmönnum. Ingvi Þór segir framboðið ekki til komið vegna þess að honum hafi þótt stjórn sjóðsins ábótavant. „Í sjálfu sér ekki. Ég er mjög stoltur af því að vera í sjóðnum, en hef ákveðnar áhyggjur af sinnuleysi um stjórn hans.“ Það segir hann til dæmis endurspeglast í því að á síðasta ársfund sjóðsins hafi bara mætt 40 sjóðsfélagar af tæplega 50 þúsundum. Þá gagnrýnir Ingvi Þór hvernig stjórn sjóðsins hafi tekið framboðinu, svo sem með því að senda ekki út til sjóðsfélaga í tölvupósti tilkynningu um framboð hans. Þá hafi um 300 orða kynning sem hann hafi sent til birtingar á vef sjóðsins verið stytt í um 20 orð. „Þeir segjast bara senda út ef það eru nokkrar fréttir í einu,“ segir Ingvi. „Og ef ég hefði ekki boðið mig fram núna væri sjálfkjörið í stjórnina aftur. Þetta stuðar mann aðeins.“ Í svo stórum lífeyrissjóði ætti enginn að ganga að því vísu að labba bara inn í stjórn. Ingvi segir lífeyrissjóðina skipta sköpum fyrir framtíðarvelferð þjóðarinnar og því þurfi fólk að láta sig sjóðina varða og geta treyst þeim. Traust til sjóðanna fari hins vegar hríðminnkandi og litlu sé varið í fræðslu eða kynningu á þeim. „Samt sem áður greiða landsmenn á bilinu 10 til 15 prósent launa sinna mánaðarlega til þessara sjóða.“ Eignir fólks í sjóðunum séu miklar sem kalli á bæði aukið aðhald með þeim og bætta upplýsingagjöf. „Ég stend harður á því að réttur sjóðsfélaga til að hafa áhrif á framgang mála og stefnu lífeyrisjóðanna í heild sé best nýttur á aðalfundi. Félagsstarf er mikilvægt og ungt fólk verður að láta til sín taka í því.“ Ingvi Þór hvetur sjóðsfélaga til að mæta á ársfundinn, sem er á morgun, bæði til að nýta rétt sinn til kosninga og eins til að sýna í verki að fólki sé ekki sama um málefni lífeyrissjóðanna. „Ég stend heils hugar með Frjálsa og tel hann standa öðrum lífeyrissjóðum framar,“ segir hann og kveðst vilja vinna að virkara félagsstarfi sjóðsins og vandaðri upplýsingum til félagsmanna.Í framboði á morgun Frestur til að skila inn framboði í stjórn Frjálsa lífeyrissjóðsins fyrir ársfundinn á morgun rann út 19. maí síðastliðinn. Kosið verður um tvo aðalmenn til tveggja ára og tvo varamenn til eins árs. Fram kemur á vef sjóðsins að í framboði í aðalstjórn séu Anna Sigríður Halldórsdóttir hagfræðingur, sérfræðingur hjá Hagstofu Íslands og stjórnarmaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum, Ásgeir Thoroddsen lögfræðingur, lögmaður og stjórnarformaður í Frjálsa lífeyrissjóðnum, og Ingvi Þór Georgsson, viðskiptafræðingur og M.Sc. í alþjóðaviðskiptum, starfsmaður í upplýsinga- og kynningarmálum hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi. Sjálfkjörið er í varastjórn sjóðsins. Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu 25. maí
Mest lesið Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Sigga Lund lenti illa í „Vefstól Svanhildar“ og varar aðra við Neytendur Icelandair ræður þrjá nýja stjórnendur til starfa Viðskipti innlent Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Frosti og Arnþrúður fá styrki Viðskipti innlent „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Neytendur Fleiri fréttir Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sif nýr framkvæmdastjóri Aton Sjá meira