Gjaldeyrisútboðið verður 16. júní Samúel Karl Ólason skrifar 25. maí 2016 19:54 Vísir/GVA
Seðlabanki Íslands ætlar að halda gjaldeyrisútboð þann 16. júní. Þá mun bankinn bjóðast til að kaupa aflandskrónur sem í skiptum fyrir reiðufé í erlendum gjaldeyri. Útboðið er liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda um losun fjármagnshafta. Samkvæmt tilkynningu á vef Seðlabankans verður útboðsfyrirkomulagið með þeim hætti að samþykkt tilboð muni bjóðast fjárfestum á sama verði. Verð seldra evra muni ráðast af þátttöku, en verðið má sjá á mynd hér að neðan. Aflandskrónueignir eru nú yfir 300 milljarðar króna.Frumvarp um þetta útboð var samþykkt á sunnudagskvöldið. Aflandskrónur sem ekki fara út í útboði Seðlabankans verða lagðar inn á reikninga sem háðir eru sérstökum takmörkunum. Reikningarnir bera litla sem enga vexti, eða 0,5 prósent, og þar af leiðandi nokkuð óhentugir fyrir aflandskrónueigendur. Þá segir í lögunum að einstaklingi, sem sé raunverulegur eigandi aflandskrónueigna, sé heimilt að taka út af reikningum háðum sérstökum takmörkunum að fenginni staðfestingu Seðlabanka Íslands. Hámarksúttekt hvers einstakling er ein milljón króna á ári. Með lögunum er Seðlabanka Íslands heimilt að leggja stjórnvaldssektir og dagsektir fáist ekki umbeðnar upplýsingar og gögn, eða ef bankanum er vísvitandi veittar rangar upplýsingar eða kröfum um úrbætur innan hæfilegs frests er ekki sinnt. Sektirnar geta numið frá 50 þúsund krónum til 50 milljóna króna á dag á einstaklinga. Stjórnvaldssektir sem lagðar eru á einstaklinga geta numið allt að 65 milljónum króna og sektir á lögaðila allt að 500 milljónum króna. Slíkum sektum verður beitt óháð því hvort lögbrot eru framin af ásetningi eða gáleysi, að því er segir í lögunum.
Mest lesið Icelandair segir upp 57 flugmönnum Viðskipti innlent „Krakkar sem gistu hjá okkur vissu ekki hvað var að gerast!“ Atvinnulíf Hinn almenni borgari þurfi ekki að dæla í sig steinefnum Neytendur Brimborg lækkar verð á rafbílnum Volvo EX30 Samstarf Blár Opal seldist á fimmtán þúsund Neytendur „Sársaukafullt að sjá“ IKEA vasa dýrari í Góða hirðinum Neytendur MAST varar við ólöglegu innihaldsefni í fæðubótarefni Neytendur Festi fær að kaupa Lyfju Neytendur Danir höndla ekki kóresku pakkanúðlurnar Viðskipti erlent Leiðtogakulnun: Þegar yfirmaðurinn er alveg búinn á því Atvinnulíf Fleiri fréttir Icelandair segir upp 57 flugmönnum Húsnæði B5 auglýst til leigu enn og aftur Selja höfuðstöðvarnar sem voru rýmdar vegna myglu „Betur borgandi ferðamenn“ enginn bjargvættur ferðaþjónustunnar Vetrarþjónustan þungur baggi á borginni Gerður Björt nýr framkvæmdastjóri rekstrarþjónustu Wise Kristján Andrésson gengur til liðs við Arion banka Running Tide segir upp öllu starfsfólki á Íslandi Stefnt á að virkjun Hvalár geti hafist eftir tvö ár Bjór, bingó og bíó í Vinabæ á ný Frederiksen víkur fyrir Bird Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Sigurður Tómasson til liðs við Origo Hrefna og Unnur til Novum Easyjet flýgur frá Akureyri til Manchester í vetur 500 manns sóttu um störf hjá OCHE Reykjavík Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Skuldar þrotabúi föður síns fleiri milljarða Fleiri farþegar og betri nýting Gengu frá 135 milljarða samningi um endurfjármögnun skulda Fjárfesta fyrir þrjá milljarða í Reykjanesbæ og Hafnarfirði Ein og hálf milljón farþega á fyrstu fimm mánuðum ársins Ingibjörg Ösp yfir nýrri rekstrarráðgjöf Expectus Þrír nýir stjórnendur hjá Festi „Að fara í slag við þessa risa er nánast ómögulegt“ Fjórir sérfræðingar til liðs við Helix Vilhjálmur Hilmarsson nýr hagfræðingur Visku Heimtu hlutinn úr helju og verða stærstu einkafjárfestarnir Varar við þenslu á byggingamarkaði Ráðinn tækni- og þróunarstjóri Defend Iceland Sjá meira