Bein útsending: Seðlabankinn rökstyður óbreytta stýrivexti og hærri verðbólguspá ingvar haraldsson skrifar 11. maí 2016 09:48 Þórarinn G. Pétursson og Már Guðmundsson, nefndarmenn í peningastefnunefnd. vísir/stefán
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands tilkynnti í morgun að hún hefði ákveðið að halda vöxtum bankans óbreyttum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því áfram 5,75%. Upptöku af fundi þar sem Seðlabankinn kynnti vaxtaákvörðunina má sjá í spilaranum hér að neðan. Þar kynntu Már Guðmundsson seðlabankastjóri og Þórarinn G. Pétursson aðalhagfræðingur að rökin fyrir ákvörðun peningastefnunefndar. Jafnframt var efni nýútgefinna peningamála kynnt. Í rökstuðningi bankans er bent á að flest bendi til þess að hagvöxtur verði enn meiri í ár en í fyrra. Verðbólga sé þó enn undir markmiði og hafi verið um tveggja ára skeið. Samkvæmt spá Seðlabankans er að öðru óbreyttu útlit fyrir að verðbólga verði undir markmiði fram eftir ári en aukist þegar innflutningsverðlag hættir að lækka. Samkvæmt spá Seðlabankans verður verðbólga 3% á lokafjórðungi ársins og 4½% á seinni hluta næsta árs en tekur síðan að þokast að markmiði fyrir tilstilli aðhaldssamrar peningastefnu. Seðlabankinn hefur því hækkað verðbólguspá sína frá því í febrúar og segir Seðlabankinn muninn skýrist af því að nú séu horfur á meiri vexti efnahagsumsvifa en þá hafi verið gert ráð fyrir.Upptöku frá fundi Seðlabankans í morgun má sjá hér að neðan.
Mest lesið Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Viðskipti innlent Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Íslendingar aldrei farið í fleiri utanlandsferðir Sjá meira