Viðskipti innlent

Nemendur í HR þróuðu gosdrykk sem róar taugarnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Hópurinn á bak við drykkinn sem verður hægt að smakka á næstu dögum.
Hópurinn á bak við drykkinn sem verður hægt að smakka á næstu dögum.
Nemendur í Háskólanum í Reykjavík hafa þróað drykkjarvöruna Stressless sem auðveldar fólki að taka á streitu og slaka á. Drykkurinn inniheldur ýmis efni sem hafa áhrif á slökun en einnig er drykkurinn léttkolsýrður.

Þau Álfheiður María Ívarsdóttir, Davíð Halldórsson, Eyrún Engilbertsdóttir, Gunnar Sær Ragnarsson, Hildur Júlíusdóttir og Sigurjón Guðjónsson þróuðu drykkinn í tengslum við áfangann „Nýsköpun og stofnun fyrirtækja“, sem Háskólinn í Reykjavík heldur í samvinnu við Icelandic Startups. 

„Drykkurinn inniheldur meðal annars ætihvönn, magnesíum og l-theanín. Það var ákveðið að hafa hann koffínlausan en stútfullan af vítamínum og steinefnum til að hafa hann bráðhollan,“ segir Eyrún Engilbertsdóttir. 

Einblíndu fyrst á prófstreitu 

„Við fengum góð ráð frá sérfræðingum á ýmsum sviðum eins og efnafræði, lyfjafræði og jurta- og grasafræði. Það hjálpaði okkur verulega við að gera uppskriftina,“ segir Gunnar Sær Ragnarsson

Í upphafi vill hópurinn einblína á nemendur sem glíma til dæmis við prófstreitu eða streitu við það að halda kynningar. Þó hafa fjölmargir aðrir sýnt hugmyndinni mikinn áhuga.

„Við töluðum við fólk í Háskólanum í Reykjavík og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ, og háskólanemar, sem og menntaskólanemar, viðurkenndu það að upplifa streitu í prófum, kynningum og mörgu öðru sem tengdist ekki endilega skólanum sjálfum“- segir Sigurjón Guðjónsson. „Við höfum fengið mjög góðar undirtektir og erum að kanna ráðstafanir til að hrinda forpöntun af stað vegna mikillar eftirspurnar,“ bætir Hildur Júlíusdóttir við.

Sniðugt námskeið

Hópurinn hefur klárað uppskrift á frumgerð og eru að klára að blanda hana. Einnig er hönnun umbúða langt komin.

„Við gerum ráð fyrir því að geta leyft fólki að smakka drykkinn í lok vikunnar,“ segir Davíð Halldórsson

Hópurinn telur áfangann, sem er ætlaður til þess að kenna fólki að tileinka sér það að finna góðar hugmyndir og gefa þeim líf, vera mjög sniðugan fyrir nemendur.

„Það er mjög gott fyrir okkur sem nemendur að læra frumkvöðlafræði og þróa okkar hugmynd í alvöru vöru. Þetta hefur verið mjög lærdómsríkt ferli og mun þetta klárlega hjálpa okkur í framtíðinni,“ segir Álfheiður María Ívarsdóttir.

 

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×