Ríkið hyggst byrja að borga inn á halla lífeyriskerfisins á næsta ári ingvar haraldsson skrifar 2. maí 2016 07:00 Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, segir mikilvægt að hefja greiðslurnar sem fyrst.
Ríkissjóður hyggst hefja að greiða inn á skuldbindingar sína við opinbera lífeyrissjóði á næsta ári. Samkvæmt ríkisfjármálaáætlun næstu fimm ára, sem kynnt var á föstudaginn, á að greiða fimm milljarða króna á ári inn á skuldbindingar ríkisins við B-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins (LSR). Haukur Hafsteinsson, framkvæmdastjóri LSR, segir mjög mikilvægt að ríkið hefji að greiða inn á skuldbindinguna á ný. Markmið með greiðslunum er að seinka því að B-deild lífeyrissjóðsins tæmist en það gerist árið 2029, verði ekki greitt inn á skuldbindingarnar. Kæmi til þess myndi ríkið þurfa að greiða LSR um 35 milljarða á ári til að mæta lífeyrisgreiðslum sjóðfélaga. Sé nægjanlega mikið greitt inn á skuldbindingarnar lækkar upphæðin sem ríkið þarf að greiða hins vegar um helming en ríkið og opinberir aðilar greiða í dag hluta lífeyrisgreiðslna sjóðfélaga LSR. Með því að flýta greiðslunum lækkar einnig heildarupphæðin sem ríkið þarf að greiða LSR, þar sem unnt verður að ávaxta það fé sem fæst greitt inn á skuldbindingarnar. B-deild LSR var lokað árið 1997 fyrir inngöngu nýrra sjóðfélaga en alltaf hefur verið gert ráð fyrir að iðgjöld standi undir einungis hluta lífeyrisgreiðslna en ríkið ábyrgðist það sem upp á vanti. Greitt var inn á skuldbindinguna á árunum 1999 til 2008 en greiðslunum var hætt eftir bankahrun. „Ef þessar greiðslur hefðu ekki komið frá 1999 til 2008, þá væri sjóðurinn orðinn tómur í dag. Þá væri hver einasta króna í lífeyri borguð úr ríkissjóði. Það undirstrikar hversu mikilvægt er að hefja þessar greiðslur aftur núna,“ segir Haukur.
Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent