Fasteignaverð hækkar enn Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar 20. apríl 2016 07:58 Fasteignaverð hækkar. Vísir/Anton Brink
Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,7 prósent milli mánaða í mars. Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. Hækkun fjölbýlis er eilítið minni en verið hefur síðustu mánuði, en hækkunin á sérbýli er meiri en verið hefur frá því í maí í fyrra en fjölbýli hækkaði um 0,3 prósent en sérbýli um heil 2,1 prósent. Síðustu 12 mánuði hefur fasteignaverð hækkað í heild um 1,4 prósent, fjölbýli um 8,7 prósent og sérbýli um 3,6 prósent. Viðskipti á íbúðum hefur færst í aukana milli ára en þau voru 1800 á fyrstu þremur mánuðum þessa árs miðað við 1500 í fyrra. Séu viðskiptin fyrstu þrjá mánuðina í ár borin saman við sama tíma 2015 kemur í ljós að þau eru töluvert meiri í ár, um 1.800 nú á móti um 1.500 í fyrra. „Tölur Hagstofunnar um íbúðafjárfestingu og tölur um hlutfall nýrra íbúða af seldum íbúðum styðja þá skoðun okkar að töluvert vanti upp á að framboð íbúða á höfuðborgarsvæðinu anni eftirspurn og að umframeftirspurnin ýti undir hækkun fasteignaverðs.Um þessar mundir hefur verið að koma inn á markaðinn talsverður fjöldi eigna á Seltjarnarnesi og í Reykjavík. Sala nýrra íbúða skapar ætíð töluverða aukningu á viðskiptum og svo mun væntanlega verða nú,“ segir í Hagsjánni. „Kaupmáttur launa hefur aukist verulega á síðustu misserum og almenn bjartsýni ríkir í þjóðfélaginu. Fasteignaverð hækkar jafnan fyrst og fremst vegna hefðbundinna áhrifaþátta eins og þróun kaupmáttar, tekna, vaxtastigs af húsnæðislánum og atvinnustigs. Þróun allra þessara þátta stefnir nú í þá átt að ýta undir hækkun fasteignaverðs. Þessu til viðbótar er sú staða nú uppi að framboð íbúða annar ekki eftirspurn og greinileg þörf virðist vera á fleiri nýjum íbúðum inn á markaðinn til þess að anna aukinni eftirspurn. Flestir undirliggjandi þættir vísa því í áframhaldandi hækkun fasteignaverðs. Hagfræðideild spáði í nóvember 8 prósent árlegri hækkun fasteignaverðs á árunum 2016-2018.“
Tengdar fréttir Íbúðalánasjóður selur 504 fasteignir um land allt Íbúðirnar eru um land allt og verða boðnar til sölu í 15 eignasöfnum 9. desember 2015 11:24 Mest lesið Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Kvartanir berast í hverri viku vegna gjafabréfa Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Flogin frá Icelandair til Nova Viðskipti innlent Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Viðskipti innlent „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Algeng meiðsli fótboltamanna kveikjan að appinu sem hún þróaði Atvinnulíf Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira
Íbúðalánasjóður selur 504 fasteignir um land allt Íbúðirnar eru um land allt og verða boðnar til sölu í 15 eignasöfnum 9. desember 2015 11:24