Selja ekki bílabensín undir merkjum Shell Jón Hákon Halldorsson skrifar 20. apríl 2016 09:30 Valgeir Baldursson segir að stjórnendur Skeljungs hafi talið að það myndi fylgja því viss sveigjanleiki að nota sitt eigið vörumerki í stað þess að vera áfram með vörumerki Shell í bílaeldsneyti. Fréttablaðið/Pjetur
Skeljungur hefur ráðist í endurskoðun á allri vörumerkjastefnu sinni og mun hætta að selja eldsneyti á bíla undir merkjum Shell. „Við ákváðum í kjölfar af stefnumótun sem við vorum að klára undir lok ársins að fara í endurskoðun á vörumerkjastefnunni og vörumerkjunum okkar,“ segir Valgeir Baldursson, forstjóri Skeljungs. Valgeir segir að út úr þessari endurskoðun hafi orðið til vörumerkið Orkan X. Hluti af þessari stefnumótun hafi síðan verið endurskoðun á áratugalöngu samstarfi við Shell. „Við höfum átt í löngu og farsælu samstarfi við Shell og munum eiga það áfram á mjög mörgum sviðum, svo sem í smurolíu og í þjónustu við flugvélaeldsneyti og skipaeldsneyti,“ segir Valgeir en bætir því við að á bensínstöðvunum verði hér eftir notast við vörumerki Skeljungs. „Við teljum að við séum með mjög sterkt vörumerki sem Skeljungur er á íslenskum markaði. Og töldum að því myndi fylgja sveigjanleiki og ákveðin tækifæri sem eru ekki til staðar með erlendum vörumerkjum. Og töldum að við gætum haft meira frumkvæði og verið snarpari á þessum markaði þar sem ríkir mikil og hörð samkeppni alla daga.“ Valgeir segir að með breytingunum takist Skeljungi að draga úr kostnaði. Það sé jákvætt, en þó ekki meginástæða breytinganna. „Eftir sem áður munum við leggja áherslu á sama konsept, sem er þjónusta og sala á gæðaeldsneyti,“ segir Valgeir. Breytingin fyrir viðskiptavinina eigi að verða til hins betra. Valgeir segir að breytingunni á vörumerkinu muni ekki fylgja neinar breytingar á því hvar eldsneytið er keypt í heildsölu. „Við höfum ekki keypt eldsneyti af Shell í heildsölu í meira en áratug. Þetta hafa bara verið merkingar á stöðvum og það regluverk sem fellur undir þessi stóru erlendu vörumerki.“ Valgeir býst ekki við því að ferðamenn sem hingað koma muni sækja á aðra staði, í önnur alþjóðleg merki hér, í stað þess að versla við Skeljung. „Það hefur ekki verið reynsla okkar að ferðamenn velti mikið fyrir sér vörumerkjunum þegar kemur að kaupum á eldsneyti,“ segir hann. Hingað til hafi ferðamönnum ekki fjölgað meira á Shell-stöðvum en öðrum stöðvum.
Mest lesið Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Sólin sest á Guide to Europe Viðskipti innlent Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Viðskipti innlent GameStop vill kaupa eBay Viðskipti erlent Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Viðskipti innlent Sjáðu húsið þitt í nýjum búningi áður en framkvæmdir hefjast Samstarf Ísland ekki jaðarmarkaður segir framkvæmdastjóri BMW Samstarf Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Viðskipti innlent Einn ríkasti maður Noregs látinn Viðskipti erlent Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Neytendur Fleiri fréttir Ríkið lagði Lárus með minnsta mun Bankaskattur kosti 323 þúsund á ári miðað við 50 milljóna lán Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Sólin sest á Guide to Europe Kjörbúðinni lokað og ein verslun eftir í bænum Sólmyrkvinn gæti virkjað forsenduákvæði kjarasamninga Lækkunin hafi skilað sér en með einni undantekningu Himneskt ei meir Kaupa CCP aftur frá Kóreu Nýir eigendur taka við svæðismiðlinum Trölla.is Bensínverð hefur lækkað Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Útsendarar FDA í átta daga fyrirvaralausri úttekt hjá Alvotech Arion banki hækkar vexti Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Sigrún ráðin aðalbókari Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Húsnæði Kjötborgar til sölu Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Vara við svikapóstum um lén frá DMS Iceland Telur enn að stýrivextir verði hækkaðir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Sjá meira