Móttökurnar framar björtustu vonum Svavar Hávarðsson skrifar 23. apríl 2016 07:00 Fréttablaðið 15 ára - Stiklað á stóru
Fréttablaðið var fyrst borið í hús á þessum degi fyrir fimmtán árum – 23. apríl 2001. Má fullyrða að þá hafi verið brotið blað í sögu íslenskrar fjölmiðlunar þó fáir hafi verið sérstaklega trúaðir á að hægt væri að stofna til útgáfu nýs dagblaðs, nema ef væru helst þeir sem að blaðinu stóðu.Hrakspár Útgáfu fríblaðs á Íslandi fylgdu eindregnar hrakspár þó vel gengi með útgáfu slíkra dagblaða víða annars staðar, en hér var það aðallega kostnaður við dreifingu sem helst var talinn standa í vegi þess að fríblað gæti dafnað hér, því ekki var fyrir að fara fjölsóttum samgöngumiðstöðvum sem útgáfa fríblaða erlendis byggði að hluta til tilveru sína á. Engu að síður er það staðreynd að aðeins þremur árum frá upphafi útgáfunnar var Fréttablaðið mest lesna dagblað landsins – sem er staða sem aldrei hefur síðan verið látin af hendi. Fréttablaðið hefur verið fyrsti kostur margra fréttaþyrstra Íslendinga frá upphafi, þó lesturinn hafi minnkað talsvert frá því að hann var í hæstu hæðum. Ekki var við öðru að búast þegar horft er út fyrir landsteinana á þróun annarra dagblaða í kjölfar uppgangs netmiðla sem hafa náð sífellt sterkari stöðu á meðan Fréttablaðið hefur safnað árum.Mikil flóð á Suðurlandi rétt fyrir jólin 2006 voru sögusvið þessarar vel þekktu myndar Fréttablaðsins. Vísir/StefánHugmynd fæðist Tilurð blaðsins lýsti Eyjólfur Sveinsson, stofnandi þess, í viðtali í Fréttablaðinu þegar tíu ár voru liðin frá stofnun þess. Þar rifjaði hann upp að hugmyndin grundvallaðist ekki síst á tilkomu netsins – smærri dagblöðum fækkaði hratt og fá og stór dagblöð voru helst talin eiga möguleika á að keppa við hina nýju tækni. Eyjólfur og faðir hans, Sveinn R. Eyjólfsson, leiddu Frjálsa fjölmiðlun, útgáfufélag DV og Dags – blaðs sem gömlu flokksblöðin Tíminn, Alþýðublaðið og Vikublaðið/Þjóðviljinn voru felld undir. Um mitt ár 2000 þótti sýnt að útgáfa Dags var ekki lífvænleg og leitin að ferskum hugmyndum hófst því ljóst þótti að þegar Dagur hætti að koma út yrði þess ekki langt að bíða að þriðja blaðið kæmi inn á markaðinn með Morgunblaðinu og DV. Því var útgáfu Fréttablaðsins að hluta til ætlað að verja DV á markaði og útgáfufélagið Frjálsa fjölmiðlun, en Dagur hvarf af sviðinu stuttu áður en Fréttablaðið leit dagsins ljós. Veturinn 2000 til 2001 var unnið að undirbúningi Fréttablaðsins í samstarfi við starfsmenn Frjálsrar fjölmiðlunar enda mikil reynsla þar innan dyra af útgáfu. Lykilmenn í þessari sögu voru þó ekki þar innan dyra, eða þeir Einar Karl Haraldsson, fyrsti ritstjóri blaðsins, og Gunnar Smári Egilsson, sem að öðrum ólöstuðum á mest í útliti, uppgangi og velgengni blaðsins á fyrstu árum þess.Í svarthvítu Upphaflega kom Fréttablaðið út fimm sinnum í viku og var 24 síður og að hluta prentað í svarthvítu. Fljótlega tók að bera á fjárhagsörðugleikum og strax um haustið fundu starfsmenn það á eigin skinni þegar launagreiðslur bárust ekki. Um mitt sumar var reksturinn kominn í þrot en síðar um sumarið kom blaðið aftur út í krafti nýs útgáfufélags – Fréttar ehf. Um 25 starfsmenn undir ritstjórn Gunnars Smára gáfu blaðið út í sömu stærð og í upphafi en eitt stærsta verkefnið var að reisa dreifikerfi blaðsins við sem eðli málsins samkvæmt gegndi lykilhlutverki. Vel tókst til við að vinna traust lesenda og auglýsenda. Til að gera langa sögu stuttu var Fréttablaðið fáum árum síðar gefið út alla daga vikunnar fjórfalt lengra en í upphafi suma útgáfudaga, auk aukablaða. Í lestrarkönnun sem kynnt var í apríl 2003 var þeim áfanga náð að lestur blaðsins mældist meiri en Morgunblaðsins – nokkuð sem leynt og ljóst hafði verið eitt helsta markmið hópsins sem stóð að blaðinu.Vigdís Hauksdóttir í glugga Alþingishússins á meðan mótmælt var í kjölfar Kastljóssþáttar um Panamaskjölin.Vísir/VilhelmÁ annað þúsund blaðberar Þegar Fréttablaðið fagnaði fimm ára afmæli sínu árið 2006 var sagt frá því á síðum blaðsins að þá störfuðu 150 manns við blaðið; við skrif, ljósmyndun og umbrot og á auglýsinga- og markaðsdeild. Þar að auki unnu á annað þúsund blaðberar við að bera blaðið út. Þá var blaðinu dreift um allt land og prentað í vel yfir hundrað þúsund eintökum. Yfir þetta tímabil fór heildarblaðsíðufjöldi að meðaltali á dag úr tæplega 26 síðum árið 2002 í tæplega 62 síður árið 2005. Samhliða þessum hraða vexti má kannski segja að blaðið hafi jafnt og þétt fjarlægst það sem það ætlaði sér upphaflega vera – hreint fréttablað – og nálgast það að vera hefðbundnara dagblað en upphaflega var ætlunin. Annað efni, eins og aðsendar greinar, innblaðsefni og íþróttir hafa þannig fengið aukið vægi eftir því sem blaðinu óx fiskur um hrygg.Fréttamynd ársins 2010. Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, og Geir Waage ræðast við í Biskupsstofu um vandræði kirkjunnar. Vísir/GVATímamót Hrunið árið 2008 markaði tímamót í útgáfu Fréttablaðsins rétt eins og víða annars staðar í samfélaginu. Svæði blaðsins í frídreifingu var minnkað verulega til að lækka kostnað eftir að auglýsingatekjur tóku dýfu eftir bankahrunið. Því var mætt með lausasölu blaðsins úti á landi og jafnframt lögð áhersla á að lesendur blaðsins ættu auðveldara með að nálgast efni þess á netinu. Í þeim ólgusjó sem hruninu fylgdi urðu miklar breytingar á starfsmannahaldi og mun færri vinna nú beint að útgáfu blaðsins en lengi var, en hluti breytinga eftirhrunsáranna er að ritstjórn Fréttablaðsins er nú hluti af stærstu fréttastofu landsins – sameinaðri fréttastofu 365 miðla ásamt fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar.Fréttamynd ársins 2009. Tuttugu menn voru handteknir í átökum á milli mótmælenda og lögreglu á Suðurlandsvegi 23. apríl 2008. Átökin áttu upptök sín í aðgerðum atvinnubílstjóra sem hindruðu umferð um veginn. Vísir/PjeturÁhrifavaldur Birgir Guðmundsson, dósent við félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri, hefur um árabil rannsakað íslenska fjölmiðla og íslenska fjölmiðlapólitík, og því áhrif þess þegar að fríblöð ruddu sér leið inn á íslenskan fjölmiðlamarkað. Ein af hans niðurstöðum er að þrátt fyrir að Fréttablaðið hafi verið brautryðjandi á mörgum sviðum þá hafi blaðamennskan verið hefðbundin, en metnaðarfull fréttastefna hafi verið lykillinn að velgengni þar sem skilið er skýrt á milli frétta og skoðana. Viðskiptaleg áhrif blaðsins á íslenskan fjölmiðlamarkað voru hins vegar gríðarmikil frá upphafi og samkeppni virkari, ekki síst um auglýsingar. Margvíslegar breytingar urðu á þeim blöðum sem fyrir voru á markaðnum, þegar áhrifa Fréttablaðsins fór að gæta af fullum þunga, bæði í uppbyggingu og efnisvali. „Tilkoma Fréttablaðsins á sínum tíma hafði afgerandi áhrif á íslenskan blaðamarkað. Tvíveldi Morgunblaðsins og DV var steypt af stóli og menn urðu að endurskoða stöðu sína á markaði og taka mið af því sem Fréttablaðið var að gera. Strax í febrúar 2003 var Fréttablaðið komið með meiri meðallestur en Morgunblaðið og átti munurinn eftir að aukast á næstu misserum og árum. Ýmsar breytingar mátti sjá í áherslum og efnistökum dagblaðanna sem rekja má til harðnandi samkeppni. Morgunblaðið hætti að vera með erlendar fréttir á forsíðu og áhersla á innlendar fréttir varð meiri. Á sama tíma varð áhersla allra prentmiðlanna á afþreyingarefni og mýkri fréttir sýnilegri – þróun sem segja má að hafi verið alþjóðleg en kom mjög sterkt fram hér á landi,“ segir Birgir. Hann segir jafnframt að þessi samkeppni á prentmiðlamarkaði hafi harðnað á sama tíma og lestur dagblaða fór minnkandi og að sú staðreynd að Fréttablaðið var borið frítt inn á nær öll heimili á landinu hafi gert það að verkum að blaðalestur minnkaði ekki eins hratt og búast má við að annars hefði verið. „Sérstaklega má gera ráð fyrir að þessi áhrif hafi haft áhrif á yngri kynslóðina og í raun gert það að verkum að til urðu blaðalesendur sem annars hefðu ekki orðið til.“Umfjöllunin birtist fyrst í Fréttablaðinu 23. aprílFyrsta forsíða Fréttablaðsins
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið „Okkur langar að börnin okkar fái öruggan stað til að vera á“ Innlent Lífstíðarfangelsi fyrir að selja dóttur sína Erlent Tapaði 20 milljónum á svipstundu við að samþykkja beiðni Innlent Leitinni að sundmanninum lokið að sinni Innlent Ísrael samþykkir vopnahlé Trumps Erlent Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Innlent Barn fórst í Hvítá í gær Innlent Gróf slagsmál foreldra á fótboltamóti barna reyndust plat Innlent Ákærður fyrir að keyra á hóp fólks í Liverpool Erlent Stærsti óttinn varð að veruleika á þriðja degi af 90 Innlent Fleiri fréttir „Okkur langar að börnin okkar fái öruggan stað til að vera á“ Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Biblíur og Kjarval sameinast í Vestmannaeyjum Tapaði 20 milljónum á svipstundu við að samþykkja beiðni Sjaldséð heimsókn utanríkisráðherra og háar upphæðir sem hverfa Ætla ekki að minnka leyfilegan dagsafla Leitinni að sundmanninum lokið að sinni „Arfavitlaus lausn“ að minnka aflann í hverri veiðiferð Barn fórst í Hvítá í gær Drengurinn er kominn í leitirnar Gróf slagsmál foreldra á fótboltamóti barna reyndust plat Ómetanlegt að koma skilaboðum sinnar kynslóðar á framfæri á svo stórum viðburði Segir ráðgjöf Hafró kippt úr sambandi og „gúmmítékki“ sendur á næstu ríkisstjórn Svæðið sem Veitur vilja girða „óþarflega stórt“ Enn unnið að því að ná dráttarvélinni upp eftir alvarlegt slys í Hvítá Strandveiðifrumvarp „með ólíkindum“ og drama í borðtennisheiminum Gæsluvarðhald framlengt um fjórar vikur Kynna bráðabirgðarúfærslu á strandveiðunum Dómur yfir Bergvini óbreyttur en þarf að greiða hærri miskabætur Fjórtán ára á rúntinum Verst þegar barninu líður eins og það sé annars flokks Rétt náði að stilla hjálminn sem bjargaði lífi dótturinnar Átta nemendur með ágætiseinkunn Margt til fyrirmyndar á Íslandi en gerir athugasemd við einangrunarvistun ódæmdra fanga Oscar fluttur úr landi á þriðjudag Sveitastjóraskipti í Reykhólahreppi Stærsti óttinn varð að veruleika á þriðja degi af 90 Fasteignamat fyrir 2026: Seltjarnarnes hástökkvarinn á höfuðborgarsvæðinu Tjaldaði á túni í miðborg Reykjavíkur Samrunatillögur bankanna og sjóveikur sundkappi Sjá meira
Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Innlent
Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“
Utanríkisráðherra Breta á Íslandi: „Gleður mig að Ísland vill vera með í bandalagi viljugra þjóða“ Innlent