Innlent

Ölvaður maður hótaði að skjóta mann til bana á Suðurnesjum

Stefán Ó. Jónsson skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum
Lögreglan á Suðurnesjum Vísir/vilhelm
Lögreglan á Suðurnesjum var með mikinn viðbúnað að Ásbrú í morgun eftir að tilkynning barst um mann sem hugðist beita skotvopnum gegn öðrum manni.

Maðurinn, sem að sögn lögreglu var ölvaður, hringdi sjálfur í neyðarlínuna og nafngreindi manninn sem hann hugðist skjóta til bana.

Alls voru tíu lögreglumenn kallaðir á vettvang sem og meðlimir úr sérsveit ríkislögreglustjóra eins og venja er þegar slík mál koma inn á borð lögreglu.

Eftir samningaviðræður við lögreglumenn kom maðurinn af sjálfsdáðum út úr íbúð sinni og við nánari grenslan fundust hvorki skotvopn né sá sem maðurinn hótaði að verða að aldurtila.

Maðurinn verður yfirheyrður síðar í dag þegar búið er að renna af honum. Mbl greindi fyrst frá málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×