Þorbjörg frumkvöðull ársins Sæunn Gísladóttir skrifar 13. apríl 2016 11:08 Dr. Þorbjörg Jensdóttir stofnandi og framkvæmdastjóri IceMedico var valin frumkvöðull ársins 2016. Mynd/Aðsend
Dr. Þorbjörg Jensdóttir stofnandi og framkvæmdastjóri IceMedico var valin frumkvöðull ársins 2016 á verðlaunaafhendingu sem Stjórnvísi stóð fyrir þriðjudaginn 12. apríl á Grand Hótel. Þau viðmið sem dómnefnd hefur við val á frumkvöðli ársins er meðal annars nýsköpun, stefna og árangur í starfi. Frumkvöðull ársins stuðlar að samkeppnisforskoti með skarpri framtíðarsýn og þekkingu á þörfum viðskiptavina og hefur góðan skilning á atvinnugreininni, segir í tilkynningu. Leið Þorbjargar í starf frumkvöðuls og framkvæmdastjóra lág í gegnum doktorsnám í Danmörku og rannsóknir þeim tengdum á glerungseyðingu tanna. Þær rannsóknir leiddu af sér munnsogs-mola sem örvuðu munnvatnsframleiðslu um 20 falt án þess að eyða glerungi tannanna. Þorbjörg sá strax tækifærið og við tók vinna við að tryggja einkaleyfið víða um heim og koma vörunni á markað. Síðasta haust flutti svo Þorbjörg aftur til Íslands þar sem hún hefur byggt upp fyrirtækið IceMedico og styrkt á sviði markaðssetningar og sölu auk hönnunar sem verður sífellt mikilvægari þáttur markaðssetningar. Mikill markaður er fyrir vöru eins og HAp+ sem bætir lífsgæði fólks sem þjáist af munnþurrki. Styrkur HAp+ er fyrst og fremst sá að langvarandi notkun molanna skemmir ekki tennur. Um 400 lyf á Íslandi valda munnþurrki og hefur samstarf með fagfólki úr læknavísindunum reynst mjög gott til að byggja upp góða vöru og sterkt vörumerki, enda er varan upprunnin úr læknavísindum. Ákvörðun dómnefndar byggir meðal annars á eftirfarandi lýsingu. Af mikilli stefnufestu, áræðni og hugviti hefur þessi frumkvöðull byggt upp fyrirtækið IceMedico ehf. Frumkvöðullinn hefur sýnt mikla forystuhæfileika og er vísindamaðurinn að baki uppfinningu, sem HAp+ byggir á og eigandi einkaleyfis í fjölda landa. Frumkvöðullinn er sérfræðingur á sínu sviði og hefur mikla þekkingu og reynslu bæði hvað varðar vísindin og viðskiptin í kringum HAp+. Hann þekkir þarfir og væntingar viðskiptavinanna og er einnig virkur í fræða- og viðskiptasamfélaginu á þessu sviði.
Mest lesið Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Neytendur Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst enn Viðskipti innlent Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Sjá meira
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent
Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Viðskipti innlent