Putin og Poroshenko ræddu fangaskipti Samúel Karl Ólason skrifar 18. apríl 2016 21:55 Nadiya Savchenko, Aleksandr Aleksandrov og Yerofeyev Yevgeny Yerofeyev. Vísir/EPA/AFP
Vladimir Putin og Petro Poroshenko, forsetar Rússlands og Úkraínu, ræddu möguleg fangaskipti í síma í dag. Tveir menn sem sagðir eru vera rússneskir sérsveitarmenn voru dæmdir í fjórtán ára fangelsi í Úkraínu í dag. Í síðasta mánuði var úkraínska þingkonan Nadiya Savchenko dæmd í 22 ára fangelsi í Rússlandi. Þeir Aleksandr Aleksandrov og Yerofeyev Yevgeny Yerofeyev voru handsamaðir í austurhluta Úkraínu þar sem aðskilnaðarsinnar, hliðhollir Rússlandi, hafa barist fyrir sjálfstæði. Þeir voru dæmdir fyrir að hafa farið ólöglega yfir landamæri Úkraínu, vopnaburð og aðild að hryðjuverkasamtökum. Yfirvöld í Úkraínu segja þá vera rússneska sérsveitarmenn sem hafi barist með aðskilnaðarsinnum. Rússar segja hins vegar að þeir hafi ekki starfað fyrir rússneska herinn þegar þeir voru handsamaðir.Nadiya Savchenko var handsömuð af aðskilnaðarsinnum þar sem hún tók þátt í bardögum í austurhluta Úkraínu. Hún er flugmaður og var dæmd fyrir að hafa kallað eftir stórskotaárás úr lofti. Rússar segja að tveir rússneskir blaðamenn hafi látið lífið í árásinni.Sjá einnig: Vilja önnur réttarhöld yfir Savchenko Samband ríkjanna hefur versnað verulega frá því að Rússar innlimuðu Krímskaga af Úkraínu árið 2014. Þá eru Rússar sagðir hafi veitt aðskilnaðarsinnum í austurhluta Úkraínu mikinn stuðning.Samkvæmt BBC hafði Poroshenko áður stungið upp á því að skipt yrði á Savchenko og tveimur Rússum, en ekki liggur fyrir hvort hann var að tala um þá Aleksandrov og Yerofeyev.
Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent Palestínufánar í Mosfellsbæ vekja upp misgóð viðbrögð Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Fjallkonan í ár er Ebba Katrín Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Flokkurinn standi ekki lengur með mannréttindum Innlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Fleiri fréttir Netanjahú leysir stríðsráðið upp Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Netanyahu vill ekki gera hlé á hernaði Hyggjast gera dagleg hlé á árásum til að auka við neyðaraðstoð Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Sjá meira