Þátttakendur frá 40 þjóðum á jarðvarmaráðstefnu í Hörpu Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. apríl 2016 14:52 Michael Porter, prófessor við Harvard-háskóla og einn af virtustu hagfræðingum heims. Vísir/Anton Brink
Von er á um allt að 800-1000 þátttakendum af yfir 40 þjóðernum á ráðstefnu um nýtingu jarðvarma í Hörpu dagana 26. til 29. apríl. Ráðstefnan, sem ber yfirskriftina „Fjölnýting jarðvarmans“ er ein sú stærsta á sviði jarðvarmanýtingar í heiminum á þessu ári sem í tilkynningu frá Gekon. „Viðamikil dagskrá og sýning fagaðila verður í Hörpu en einnig verða farnar vettvangsferðir um höfuðborgina og nágrenni til að skoða fjölbreytta nýtingu jarðvarmans hér á landi. Auk hitaveitu og raforkuframleiðslu kemur jarðvarmi til dæmis við sögu í matvælaframleiðslu af ýmsu tagi, í ferðaþjónustu og við heilsueflingu landsmanna.“Hákon Gunnarsson framkvæmdastjóri Gekon og Rósbjörg Jónsdóttir aðstoðarframkvæmdastjóri.vísir/ernirÞetta er í þriðja skipti sem Íslenski jarðvarmaklasinn stendur fyrir alþjóðlegri ráðstefnu um jarðvarmanýtingu í Reykjavík. Árið 2013 sóttu um 600 þátttakendur ráðstefnuna. Lykilfyrirlesarar ráðstefnunnar eru meðal annarra Michael Porter, prófessor við Harvard Business School og „guðfaðir“ íslenska Jarðvarmaklasans, A. Amin forseti IRENA – International Renewable Agency, Rachel Kyte, formaður nefndar um sjálfbæra orku fyrir alla hjá World Bank, dr. Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar, og Ásgeir Margeirsson, forstjóri HS Orku. Lilja Alfreðsdóttir utanríkisráðherra mun opna ráðstefnuna. „Með IGC ráðstefnunni hefur Íslenska jarðvarmaklasanum tekist að byggja upp Ísland sem einn aðalumræðuvettvang jarðvarma og endurnýjanlegrar orku á heimsvísu. Flutt verða yfir 60 erindi verða frá meira en 20 þjóðum,“ segir í tilkynningunni. Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands er verndari ráðstefnunnar, líkt og í hin 2 fyrri skiptin sem IGC hefur verið haldin.
Mest lesið Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira