Óvissan í stjórnmálunum hefur áhrif á skuldabréfamarkað jón hákon halldórsson skrifar 6. apríl 2016 11:00 Jón Bjarki Bentsson, hjá greiningardeild Íslandsbanka, segir marga hafa áhyggjur af því að erlendir fjárfestar haldi sig til hlés í bili.
Ávöxtunarkrafa á flesta flokka ríkisbréfa hefur hækkað eftir helgina. Jón Bjarki Bentsson, sérfræðingur hjá Greiningu Íslandsbanka, telur að þetta tengist óvissu um framtíð ríkisstjórnarinnar. Tímasetning aflandskrónuútboðs er háð lagafrumvarpi frá Alþingi og pólitísk óvissa gæti haft áhrif á afdrif þess máls. Jón Bjarki segir að ávöxtunarkrafa á lengri flokka ríkisbréfa hafi hækkað um 0,3 prósent. „Það eru virkustu viðskiptin með þá þannig að þeir eru ágætis mælikvarði á stemninguna á markaði frekar en styttri flokkarnir,“ segir hann. Jón Bjarki segir hækkunina tengjast almennri skammtímaóvissu vegna óróa á stjórnarheimilinu en ekki síður því að menn hafa áhyggjur af því að erlendir fjárfestar haldi sig til hlés í bili. „Þeir hafa haft mikil áhrif á markaðinn síðustu mánuðina og væntingar um þeirra hegðun er ekki hvað síst drifkraftur.“ Jón Bjarki segir rétt að halda því til haga að þrátt fyrir þessar hreyfingar þá sé ávöxtunarkrafan á ríkisbréf ekkert tiltakanlega há miðað við undanfarnar vikur. „Þó velta hafi verið töluverð og meiri svartsýni ríkjandi á markaði þá er eftir sem áður yfirvegun frekar en að það sé einhver allsherjar flótti á markaði,“ segir Jón Bjarki.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Viðskipti innlent Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Viðskipti innlent Meiri árangur í líkamsrækt og íþróttum með nýrri íslenskri tækni Atvinnulíf Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Viðskipti innlent Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Viðskipti innlent Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Viðskipti innlent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Viðskipti innlent Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Viðskipti innlent Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Viðskipti erlent Nýjar íbúðir í Firði: Lúxus að búa í miðbæ Hafnarfjarðar Samstarf Fleiri fréttir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Sjá meira