Neytendastofu óheimilt að banna vaxtabreytingu Jóhann Óli Eiðsson skrifar 9. apríl 2016 13:02 Íslandsbanki tók við láninu af fyrirrennara sínum. vísir/vilhelm
Héraðsdómur Reykjavíkur ógilti í gær ákvörðun áfrýjunarnefndar neytendamála frá því í fyrra. Nefndin hafði staðfest niðurstöðu Neytendastofu um að bankanum væri óheimilt að breyta vöxtum lánsins með vísan til ákvæða laga nr. 121/1994 um neytendalán. Þann 1. nóvember 2013, mánuði áður en kvörtun barst, tóku hins vegar gildi ný lög um neytendalán, nr. 33/2013. Málavextir voru þeir að í desember 2013 barst Neytendastofu kvörtun í kjölfar þess að Íslandsbanki hækkaði vexti á láni kvartanda úr 4,15 prósentum í 4,8 prósent. Lánið er frá árinu 2005 en í skilmálum þess eru ákvæði um mögulega endurskoðun vaxta þess fimm árum eftir útgáfu þess. Þeirri endurskoðun var frestað um þrjú ár og nýjir vextir ákveðnir í júlí 2013. Lántaki taldi þá framkvæmd ekki standast lög þar sem hvergi kæmi fram til hvaða þátta væri litið við endurskoðunina.Ákvæði um lagaskil ekki „svo ófullkomin“ Í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar kemur fram að ákvæði lánsamningsins, sem vaxtahækkunin var byggð á, hafi ekki verið í samræmi við ákvæði eldri laga um neytendalán. Í eldri lögum var Neytendastofu heimilt að banna athafnir sem brutu gegn lögunum en í nýju lögunum er heimild til að „grípa til aðgerða“ gegn aðilum sem gerast brotlegir. Héraðsdómari benti á að í nýju lögunum væru tæmandi talin þau ákvæði sem ættu að gilda um opna lánssamninga sem væru í gildi fyrir gildistöku laganna. Áðurnefnt ógildingarákvæði væri þar ekki talið upp. Ekki var fallist á það að ákvæði laganna um lagaskil væru svo ófullkomin að byggt yrði á því. Í íslenskum rétti er það meginregla að ákvarðanir stjórnvalda skuli byggðar á lögum. Niðurstaða dómara var sú að ákvörðun áfrýjunarnefndarinnar hefði verið íþyngjandi fyrir Íslandsbanka og hún ekki byggð á skýrri lagaheimild. Yrði af þeim sökum að fella hana úr gildi.Leiðrétting: Í upphaflegri frétt var fullyrt að Íslandsbanka hefði verið heimilt að endurskoða vexti lánsins þrátt fyrir ófullkomin samningsákvæði. Hið rétta er að dómurinn tekur aðeins afstöðu til niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar en ekki hvort bankanum var breytingin heimil.
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira