Gjaldþrotum fækkað um 20 prósent Sæunn Gísladóttir skrifar 30. mars 2016 09:15 Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í rekstri gististaða og veitingarekstri. Vísir/Pjetur
Gjaldþrotum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði, frá mars 2015 til febrúar 2016, hefur fækkað um 20 prósent í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 629 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 784 á fyrra tímabili, samkvæmt tölum Hagstofunnar. Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum mest í rekstri gististaða og veitingarekstri, úr 67 í 43 (36 prósent). Einnig má nefna fækkun gjaldþrota í sérfræðilegri, vísindalegri og tæknilegri starfsemi úr 75 í 50 (33 prósent), auk þess að í flutningum og geymslu fækkaði gjaldþrotum úr 24 í 17 (29 prósent). Gjaldþrotum fækkaði frá fyrri 12 mánuðum í öllum helstu atvinnugreinabálkum nema í upplýsingum og fjarskiptum, þar sem þau stóðu í stað (34 gjaldþrot á hvoru tímabili). Nýskráningum einkahlutafélaga síðustu 12 mánuði hefur fjölgað um 15 prósent í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.430 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.105 á fyrri 12 mánuðum. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum þar sem þeim fjölgar úr 222 í 383, eða um 73 prósent á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má nefna byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem nýskráningum fjölgaði úr 236 í 299 (27 prósent) og leigustarfsemi og ýmsa sérhæfða þjónustu þar sem fjölgunin var úr 153 í 185 nýskráningar (21 prósent). Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga síðustu 12 mánuði var í upplýsingum og fjarskiptum, eða um 8 prósent frá fyrra tímabili (úr 190 nýskráningum í 174).
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira