HB Grandi hættir við þátttöku á sjávarútvegssýningu í Brussel Atli Ísleifsson skrifar 30. mars 2016 13:00 Til stóð að senda 27 starfsmenn félagsins á sýninguna. Myndin er frá sýningunni í Brussel á síðasta ári. Mynd/HB grandi
HB Grandi hefur ákveðið að hætta við þátttöku í árlegri alþjóðlegri sjávarútvegssýningu sem haldin verður í Brussel dagana 26.-28. apríl næstkomandi. Til stóð að senda 27 starfsmenn félagsins á sýninguna en í tilkynningu frá félaginu segir að hún sé ein sú stærsta sinnar tegundar í heiminum og félagið hafi lagt vaxandi áherslu á þátttöku í sýningunni með stækkandi sýningarbás á undanförnum árum. „Helsti tilgangur með þátttöku í sýningunni er að kynna kaupendum þær afurðir sem félagið hefur að bjóða og efla samskipti við afurðakaupendur frá öllum heimshornum. Að vel ígrunduðu máli telja stjórnendur félagsins ekki forsvaranlegt að senda starfsmenn til Brussel að þessu sinni þar sem óvíst er hvort hægt verði að tryggja öryggi þeirra með viðunandi hætti eftir nýlegar hryðjuverkaárásir í borginni. Auk þess má leiða að því líkum að slík ferð gæti valdið starfsmönnum og fjölskyldum þeirra óþægindum og kvíða. HB Grandi er í góðu sambandi við kaupendur sína um allan heim og mun styrkja þau tengsl með öðrum hætti en þátttöku í Brussel í ár. Félagið gerir ráð fyrir að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið að ári liðnu,“ segir í tilkynningunni.
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira