Boðið í húsnæði Smárakirkju og Krossgatna ingvar haraldsson skrifar 31. mars 2016 13:00 Forstöðumaður Smárakirkju segir að viðræður standi enn yfir, ekkert hafi verið ákveðið. réttablaðið/stefán
Búið er að gera kauptilboð í húsnæði Smárakirkju, sem áður hét Krossinn, og áfangaheimilisins Krossgatna, sem bæði eru í Hlíðarsmára 5-7. Þetta segir Sigurbjörg Gunnarsdóttir, forstöðumaður Smárakirkju. Hún segir ljóst að söfnuðurinn þurfi að flytja verði af viðskiptunum en engar ákvarðanir hafi verið teknar um framtíð áfangaheimilisins. Í húsnæðinu eru 25 félagslegar íbúðir. Smárakirkja og Krossgötur hafa óskað eftir því við Kópavogsbæ að fá að framselja lóðina að Hlíðarsmára til félagsins Kapex fyrir hönd félagsins L1100 ehf. Jóhannes Hauksson er stjórnarformaður L1100 og sjóðsstjóri Íslandssjóða, sem rekur meðal annars sjóði sem fjárfesta í húsnæði. Í umsögn fjármálastjóra Kópavogsbæjar til bæjarráðs segir að óheimilt sé að selja áfangaíbúðirnar nema með samþykki veðhafa og byggingaryfirvalda. Þá séu áform um að breyta notkun hússins. Á lóðinni er áhvílandi veðskuldabréf sem Kópavogsbær er í ábyrgð fyrir. Því telur fjármálastjóri bæjarins mikilvægt að krafa verði gerð um að skuldabréfin verði greidd upp. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum 23. mars.
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira