Isavia hagnaðist um 3,1 milljarð króna árið 2015 Sæunn Gísladóttir skrifar 31. mars 2016 16:52 Meðalfjöldi starfa hjá Isavia samstæðunni, sem rekur meðal annars Keflavíkurflugvöll, jókst um 11 prósent á árinu 2015. Vísir/Anton
Heildarafkoma ársins 2015 hjá Isavia samstæðunni, sem er í eigu ríkisins, var jákvæð um 3,1 milljarð króna, sem er um 876 milljónum króna betri afkoma en árið 2014. Þennan mun má að hluta rekja til gengisáhrifa af erlendum langtímalánum en stærri hluta má rekja beint til bættrar afkomu af rekstri samstæðunnar, segir í tilkynningu. Heildartekjur Isavia samstæðunnar á árinu námu 26 milljörðum króna sem er aukning um 4 milljarða eða 18% frá árinu 2014. Rekstrarafkoma fyrir fjármagnsliði nam um fjórum milljörðum króna og jókst um 671 milljón milli ára. Heildareignir samstæðunnar námu 45,2 milljörðum króna í árslok 2015 og þar af eru 37,2 milljarðar króna tilkomnir vegna fastafjármuna. Alls námu fjárfestingar í varanlegum rekstrarfjármunum og óefnislegum eignum 7,6 milljörðum króna og þar af eru 6,5 milljarðar króna tilkomnir vegna fjárfestinga á Keflavíkurflugvelli. Eiginfjárhlutfall samstæðunnar var 44,6 prósent í lok árs 2015 samanborið við 41,8 prósent árið á undan og heldur því áfram að hækka. Meðalfjöldi starfa hjá samstæðunni jókst um 11 prósent og var 1.017 störf árið 2015 samanborið við 914 störf árið 2014. Þar af var meðalfjöldi starfa hjá móðurfélaginu 807 (12 prósent aukning), hjá Fríhöfninni 161 (5,6 prósent aukning) og hjá Tern 49 (14 prósent aukning).
Mest lesið Opnar sjálfur stað þar sem rekstur Quang Le gekk best Viðskipti innlent Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Viðskipti innlent Framtíð hljóðsins er lent á Íslandi Samstarf Rúmgóður ferðafélagi með sportlegu yfirbragði Samstarf Arnar og Aron Elí til Reita Viðskipti innlent Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Viðskipti innlent Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Viðskipti innlent Hörður og Svala endurvekja Macland Viðskipti innlent U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Neytendur Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jóhann Páll hættir við þátttöku á haustfundi SVEIT Heimavöllur Aftureldingar kenndur við rafmyntafyrirtæki Ráðinn markaðsstjóri Emmessíss Hörður og Svala endurvekja Macland Hyggja á opnun verslunar á Höfn á næsta ári Litla kaffistofan verði nýtt fyrir norðurljósaferðir Endurbyggja gömul hús úr miðbæ Reykjavíkur á Selfossi Arnar og Aron Elí til Reita Eftirlitið veður í Veðurstofuna Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Leitin skili tekjum í ríkissjóð þó það finnist ekki olía Langþreytt á fasteignakeðjum sem slitna og ætlar aldrei aftur að flytja Vara við díoxíni í Landnámseggjum Slá milljarða lán til að fjármagna jarð- og sæstrengi Laganemar bjóða leigjendum áfram upp á fría ráðgjöf Heiður Anna nýr framkvæmdastjóri FS Tekur við stöðu framkvæmdastjóra Landmarks fasteignamiðlunar Olíuleit geti skipt sköpum fyrir framtíð þjóðarinnar Edda Hermanns nýr forstjóri Lyfja og heilsu Djúpstæð vonbrigði þegar margra eigna keðjur slitna Andri Sævar og Svava til Daga Tveir nýir vörumerkjastjórar til Ölgerðarinnar Tekur við sem framkvæmdastjóri verkfræðisviðs Coripharma Ráðin framkvæmdastjóri markaðsstofu Travel Connect Birgir til Banana Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Bætir við sig nýjum áfangastað á Ítalíu Loka verslun Útilífs í Smáralind Meðalsölutími fasteigna hundrað dagar Systurfélag ÞG verktaka kaupir Arnarland Sjá meira