Einstakar myndir af kynlífi panda líta dagsins ljós Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 23. mars 2016 15:38
Einstakar myndir náðust á dögunum af tveimur pöndum að makast í dýragarðinum í Vínarborg í Austurríki. Erfitt getur reynst að fá pöndur sem eru í haldi manna til að stunda kynmök. Í náttúrunni eignast pöndur afkvæmi á tveggja ára fresti að meðaltali sem þykir engu að síður lág fæðingartíðni. Enn erfiðara er þó fyrir pöndur í haldi manna, svo sem í dýragörðum, að makast. Vísindamenn áttuðu sig snemma á því að pöndur í haldi misstu annað hvort áhugann á því að stunda kynlíf eða vissu hreinlega ekki hvernig ætti að bera sig að því. Það virðist ekki vera vandamál fyrir birnina tvo í dýragarðinum í Vín. Mökunarglugginn er þó ekki opinn í langan tíma, birnan er aðeins eðlunarfús í tvo til sjö daga á 12-25 daga tímabili á vorin. Eftir að glugginn lokast þurfa birnirnir að bíða í heilt ár þangað til hægt er að reyna að nýju. Pöndur eru í útrýmingarhættu en áætlað er að um tvö þúsund pöndur séu til í heiminum. Vísindamenn hafa því áttað sig á því að mikilvægt sé að hvetja til þess að pöndur í haldi eignist afkvæmi. Í því skyni hafa þeir gefið pöndum stinningarlyfið Viagra auk þess sem að einhverjir pandabirnir hafa fengið að sjá pönduklám. Ekki virðist þó vera þörf á því í dýragarðinum í Austurríki líkt og sjá má á meðfylgjandi myndbandi hér fyrir ofan.
Mest lesið Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Erlent Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Viðreisn tapar fylgi Innlent Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira