Viðskipti innlent

Óhagstæð vöruskipti í febrúar

Sæunn Gísladóttir skrifar
Vöruskiptin í febrúar voru óhagstæð um 1,7 milljarða króna.
Vöruskiptin í febrúar voru óhagstæð um 1,7 milljarða króna. Vísir/GVA
Samkvæmt bráðabirgðatölum Hagstofunnar fyrir febrúar 2016 nam fob verðmæti vöruútflutnings rúmum 42,5 milljörðum króna og fob verðmæti vöruinnflutnings tæpum 44,3 milljörðum króna.

Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 1,7 milljarða króna.

Athygli skal vakin á því að áætlun um eldsneytiskaup íslenskra flutningsfara erlendis er nú meðtalin í bráðabirgðatölum.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×