Bankinn segist hafa fengið gjaldeyrisreglur samþykktar þó bréfið finnist ekki Aðalsteinn Kjartansson skrifar 4. mars 2016 15:08
Seðlabankinn lítur svo á að viðskiptaráðherra hafi formlega samþykkt gjaldeyrisreglur bankans sem settar voru árið 2008.Bréf þar sem formlegt samþykki á að hafa verið veitt finnst ekki.RÚV greindi frá því í gær að á þriðja tug mála sem tengjast meintum brotum á þessum reglum féllu um sjálf sig vegna þess að ekki finnist formlega samþykkt viðskiptaráðherra á reglunum. Í skriflegu svari bankans við fyrirspurn fréttastofu segir að allir sem fjallað hafa um málið, bæði fjölmiðlar og umboðsmaður Alþingis hafi ekki hrakið að viðskiptaráðherra hafi gefið formlegt samþykki fyrir reglunum. Bankinn segir að í yfirliti sem ráðuneytið sendi umboðsmanni vegna umfjöllunar hans um málið 2011 hafi komið fram að reglurnar hefðu verið samþykktar 12. desember árið 2008 með formlegum hætti. Það bréf liggur hins vegar ekki fyrir. „Það síðan hvort samþykkið finnist eða ekki á enn eftir að koma í ljós en í því sambandi verður að hafa í huga það, að samkvæmt orðanna hljóðan þá voru ekki gerðar neinar formkröfur til þessa samþykkis ráðherra í ákvæði til bráðabirgða í lögum um gjaldeyrismál, nr. 87/1992, sem var grundvöllur umræddra reglna,“ segir í svari frá bankanum. Fram kemur í svarinu að ráðuneytið hafi staðfest í bréfi til umboðsmanns Alþingis að reglurnar hefðu verið „formlega samþykktar af þáverandi efnahags- og viðskiptaráðherra með bréfi, dags. 12. desember 2008“. Daginn áður hafði bankinn óskað eftir samþykki ráðherra en þann 12. hafði ráðuneytið gert nokkrar athugasemdir sem bankinn segist svo hafa brugðist við og fengið formlegt samþykki fyrir reglunum. Þær voru svo birtar 15. desember 2008. „Allt þetta stendur óhrakið og því telur Seðlabankinn að ekki sé þörf frekari viðbragða af sinni hálfu vegna málsins, spurninga um það verði að beina til annarra sem að málinu hafa komið,“ segir að lokum í svari bankans.
Mest lesið Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira