Emil í tapliði Udinese sem klikkaði á víti á 90. mínútu Tómas Þór Þórðarson skrifar 21. febrúar 2016 15:56 Emil Hallfreðsson í leik með Udinese. vísir/getty
Emil Hallfreðsson og félagar í Udinese fóru heldur betur illa að ráði sínu gegn Genoa í ítölsku A-deildinni í fótbolta í dag. Udinese kastaði frá sér 1-0 forystu og tapaði, 2-1, en liðið brenndi einnig af vítaspyrnu á 90. mínútu sem hefði bjargað stigi fyrir gestina. Ali Adnan kom Udinese yfir á 33. mínútu en Alessio Cerci jafnaði metin úr vítaspyrnu fyrir Genoa á 57. mínútu. Emil Hallfreðsson fékk gult spjald á 63. mínútu og var tekinn af velli fjórum mínútum síðar, en án Emils fékk Udinese á sig annað mark frá Diego Laxalt á 70. mínútu, 2-1. Antonio Di Natale, dáðasti leikmaður Udinese, fékk gullið tækifæri til að jafna leikinn á 90. mínútu þegar gestirnir fengu vítaspyrnu en hann brenndi af og þar við sat, 2-1 sigur Genoa. Udinese er nú án sigurs í níu leikjum í röð í deildinni og hefur innbyrt fjögur stig í þessum níu leikjum. Liðið er í 15. sæti með 27 stig, fimm stigum frá fallsvæðinu. Emil var í byrjunarliði Udinese í þriðja sinn í dag en hefur ekki enn upplifað deildarsigur með liðinu. Hann vann heldur ekki leik með Verona áður en hann var seldur í janúar, en í heildina yfir Emil ekki unnið deildarleik á Ítalíu síðan í maí í fyrra.
Ítalski boltinn Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Þjálfari Hákons grét eftir leik Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Messi tryggði Inter Miami mikilvægan sigur Tíunda markið í húsi hjá Sveindísi Jane í lokaleiknum Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Markvörður ársins náði að stöðva Orra Tómas riðaði eftir höfuðhögg og endaði á sjúkrahúsi Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Sjá meira