Háskólinn í Reykjavík býður upp á nám í hagfræði Sæunn Gísladóttir skrifar 22. febrúar 2016 10:19
Háskólinn í Reykjavík mun hefja kennslu á nýrri námsbraut í hagfræði frá og með næsta hausti. Þegar hefur verið opnað fyrir umsóknir í námið. Meðal kennara verða dr. Friðrik Már Baldursson, prófessor; dr. Katrín Ólafsdóttir, lektor, dr. Axel Hall, lektor og fleiri sérfræðingar frá Háskólanum í Reykjavík og íslensku atvinnulífi. Tvær námsleiðir verða í boði: BSc-gráða í hagfræði og fjármálum og BSc-gráða í hagfræði og stjórnun segir í tilkynningu. Viðskiptafræði hefur verið kennd við Háskólann í Reykjavík í áraraðir. „Það er þörf á aukinni þekkingu á sviði hagfræði í atvinnulífinu,“ segir Þóranna Jónsdóttir, forseti viðskiptadeildar HR í tilkynningu. „Deildin hefur á að skipa mjög færum sérfræðingum á sviði hagfræði sem hafa áratuga reynslu af kennslu, rannsóknum og störfum fyrir atvinnulíf og samfélag. Stofnun nýrrar námsbrautar í hagfræði hefur verið í undirbúningi í tvö ár og er eðlilegt framhald af uppbyggingu kennslu í viðskiptatengdum greinum við háskólann.“ Í fyrstu verður boðið upp á nám í hagfræði til BSc gráðu en í því námi er lögð áhersla á að nemendur öðlist sterkan fræðilegan grunn í hagfræði, samhliða því að þeir fái haldgóða og hagnýta færni í að beita sinni þekkingu. Námið byggir á þeirri sterku hefð Háskólans í Reykjavík að þjálfa nemendur í að vinna í hópum, samskiptahæfni og þátttöku í þverfaglegu samstarfi. Til að undirbúa nemendur sem best fyrir framhaldsnám og störf í alþjóðlegu umhverfi er talsverður hluti námsins á ensku. Nám í hagfræði við viðskiptadeild HR er þriggja ára, 180 ECTS-nám.
Mest lesið Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Hjá lækninum: Pikk, pikk, pikk og klikk, klikk, klikk Atvinnulíf Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Samstarf Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Viðskipti innlent Þarf stundum að kalla á eiginkonuna „komdu að sofa ástin“ Atvinnulíf Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Samstarf Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira