Nýir eigendur hjá Ölvisholti Sæunn Gísladóttir skrifar 23. febrúar 2016 16:53 Elvar Þrastarson verður áfram bruggmeistari Ölvisholts en hann hefur starfað hjá Ölvisholti í þrjú ár. Mynd/aðsend
Ölvisholt Brugghús, sem er eitt af fyrstu handverks brugghúsum landsins, hefur verið selt til nýrra eigenda sem hafa tekið við rekstrinum og ætla sér stóra hluti á næstunni. Ölvisholt hefur bruggað gæðabjóra frá árinu 2007 og hefur náð góðum árangri á bjórsýningum bæði erlendis og hér heima segir í tilkynningu. Á bakvið kaupin stendur samhentur hópur sem hefur hug á að efla reksturinn til muna og halda áfram að þróa gæðabjóra. Hópurinn samanstendur af Jörundi Jörundssyni, Þór Bæring Ólafssyni, Guðmundi Hreiðarssyni, Braga Hinriki Magnússyni, Einari Sigurðssyni og Berglindi Snæland. Elvar Þrastarson verður áfram bruggmeistari Ölvisholts en hann hefur starfað hjá Ölvisholti í þrjú ár. Meðal annars er stefnt að því að auka vöruúrval og koma reglulega með nýja bjóra á markað. Meðal nýjunga hjá Ölvisholti er nýr gæðabjór sem bruggaður var sérstaklega fyrir bjórhátíðina á KEX sem hefst 24. febrúar. Samstarfsaðili Ölvisholts á Íslandi er Karl K. Karlsson en fyrirtækið sér um alla dreifingu og markaðssetningu á vörum Ölvisholts á Íslandi. Einnig er Ölvisholt með öfluga samstarfsaðila í Svíþjóð og Bandaríkjunum og á næstu vikum verða kynntir fjölmargir nýir erlendir samstarfsaðilar.
Mest lesið Innleiðing stefnu: Það er starfsfólkið sem skorar mörkin en ekki stjórnendur Atvinnulíf Setja stefnuna á seinni hluta árs Viðskipti innlent Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Viðskipti innlent Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Viðskipti innlent Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Viðskipti innlent Ósanngjarnt að skattgreiðendur borgi framkvæmdaruslið Neytendur Eigandi Vélfags talinn tengjast rússnesku leyniþjónustunni Viðskipti innlent Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Samstarf Dæmi um kolranga áætlun Skattsins Neytendur Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Viðskipti innlent Fleiri fréttir Setja stefnuna á seinni hluta árs Niceair aflýsir jómfrúarfluginu Opinber útboð á árinu fyrir 221 milljarð króna Gagnrýna að ræða eigi pitsaostsmálið við Bændasamtökin Heiðar kjörinn stjórnarformaður Íslandsbanka Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Kolefnisgjöld gætu bætt sex þúsund kalli við flugkostnað heimila „Biðröðin er löng“ Ákvörðunin á ábyrgð stjórnenda Icelandair en ekki flugmanna Hætta flugi til Istanbúl eftir að flugmenn drógu undanþágu til baka Grillhúsinu á Sprengisandi lokað Spá blússandi verðbólgu næstu mánuði Bein útsending: Skattadagurinn 2026 „Þennan vítahring þarf að rjúfa“ Of mikið A-vítamín í barnavítamíninu Veitti Vélfagi leyfi til að greiða laun Leggja til að Heiðar verði stjórnarformaður Íslandsbanka Skrá Styrkás í Kauphöllina á næsta ári Eigandinn greiddi sér hundruð milljóna í arð Leita að nafni á farþegamiðstöð fyrir skemmtiferðaskip Kappahl og Newbie opna á Íslandi Verðbólguaukning vegna vörugjalda: „Þetta er nú nokkuð meira en við gerðum ráð fyrir“ Vélfagsmálið beint í Hæstarétt Hulda til Basalt arkitekta Hvernig bæti ég fjárhagslegt öryggi þegar ég verð eldri? Úr útvarpinu í orkumálin Spá verulega aukinni verðbólgu vegna breytinga Skipta um forstjóra hjá Origo Segir komið í veg fyrir að starfsmenn Vélfags fái greitt Úthluta rúmlega þrjátíu þúsund tonna loðnukvóta Sjá meira