Ekki sýnt fram á að synir hæstaréttardómara hafi fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðu í Al Thani-málinu

Þetta er mat endurupptökunefndar sem hefur hafnað beiðni þeirra Hreiðars Más Sigurðssonar, Sigurðar Einarssonar og Ólafs Ólafssonar um að Al Thani-málið verði tekið upp að nýju. Þremenningarnir fengu allir langa fangelsisdóma í Hæstarétti vegna málsins.
Sjá einnig: Hafið yfir skynsamlegan vafa að „Óli“ sé Ólafur Ólafsson
Úrskurðir endurupptökunefndar hafa verið birtir á vefnum en Hreiðar, Sigurður og Ólafur fóru allir fram á endurupptöku meðal annars vegna þess að þeir töldu tvo hæstaréttardómara hafa verið vanhæfa til að fara með Al Thani-málið vegna tengsla sona þeirra við slitastjórn Kaupþings.
Um var að ræða dómarana Árna Kolbeinsson og Þorgeir Örlygsson en sonur Árna, Kolbeinn Árnason, var framkvæmdastjóri lögfræðisviðs slitabús Kaupþings frá 2008 til 2013. Sonur Þorgeirs, Þórarinn Þorgeirsson, tók við starfinu af Kolbeini sem nú gegnir stöðu framkvæmdastjóra Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi.
Mátu Hreiðar, Ólafur og Sigurður það sem svo að vegna skaðabótamáls slitastjórnarinnar á hendur þeim tveimur fyrrnefndu gætu þeir Kolbeinn og Þórarinn haft fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðu Al Thani-málsins. Vísuðu þeir meðal annars í fréttir DV frá því í maí 2015 þar sem kom fram að nokkrir starfsmenn slitastjórnar Kaupþings myndu fá greiddar háar fjárhæði í kaupauka ef gengið yrði frá nauðasamningum við kröfuhafa.
Niðurstaða endurupptökunefndar er sú að hvorki Kolbeinn né Þórarinn hafi notið eða muni njóta fjárhagslegra hagsmuna, eða annarra hagsmuna, vegna niðurstöðu í Al Thani-málinu:
„Hvorki Kolbeinn né Þórarinn sitja, eða hafa setið, í slitastjórn Kaupþings hf. og hvorugur þeirra hefur rekið bótamálið sem höfðað var af Kaupþingi hf. gegn endurupptökubeiðanda og Ólafi Ólafssyni 7. október 2014 fyrir héraðsdómi. Þá hefur ekki verið sýnt fram á að Kolbeinn eða Þórarinn hafi notið eða muni njóta hagsmuna, fjárhagslegra eða annarra, af niðurstöðu í hæstaréttarmáli nr. 145/2014. Ályktanir þær sem dregnar eru í grein er birtist í DV 27.-28. maí 2015 um ætlaðar háar fjárhæðir í kaupauka til nokkurra núverandi og fyrrverandi starfsmanna slitabús Kaupþings hf., vegna nauðasamninga við kröfuhafa búsins, breyta engu þar um,“ eins og segir í einum úrskurði endurupptökunefndar vegna málsins.
Tengdar fréttir

Telja að sonur hæstaréttardómara kunni að hafa haft fjárhagslega hagsmuni af niðurstöðu Al Thani-málsins
Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings, og Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður bankans, telja að Árni Kolbeinsson, hæstaréttardómari í Al Thani-málinu hafi verið vanhæfur til að dæma í því vegna tengsla sonar hans, Kolbeins Árnasonar, við slitastjórn Kaupþings

Endurupptökunefnd hafnar beiðni Ólafs Ólafssonar um endurupptöku Al Thani-málsins
Endurupptökunefnd hefur hafnað beiðni Ólafs Ólafssonar sem dæmdur var í fjögurra og hálfs árs langt fangelsi í Al Thani-málinu um að málið verði tekið upp aftur.

Ólafur Ólafsson óskar eftir endurupptöku á máli sínu
Hann segir sönnunargögn í málinu hafa verið ranglega metin.

Allir Kaupþingsmenn í afplánun með mál fyrir endurupptökunefnd
Allir fjórir Kaupþingsmennirnir sem eru í afplánun á Kvíabryggju vegna dóms í Al-Thani málinu reka nú mál fyrir endurupptökunefnd.

Ríkissaksóknari telur ekki tilefni til endurupptöku Al Thani-málsins
Sigríður Friðjónsdóttir, ríkissaksóknari, hefur skilað umsögn sinni til endurupptökunefndar vegna beiðni Ólafs Ólafssonar um að Al Thani-málið verði tekið upp aftur.