Notendur AwareGo nálgast milljón Jón Hákon Halldórsson skrifar 17. febrúar 2016 10:00 Úr auglýsingu AwareGo. Á meðal stærstu viðskiptavina fyrirtækisins eru CreditSuisse og Barclays.
Íslenska fyrirtækið AwareGo hefur gert gagnkvæman sölusamning við The Security Awareness Company í Bandaríkjunum. AwareGo framleiðir tölvuöryggismyndbönd með skilaboðum til starfsmanna um hvernig eigi að varast þjófnað á rafrænum gögnum og fleira er snertir öryggi. Ragnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri AwareGo, segir að Security Awarenes Company sé það stærsta og þekktasta í sínum geira í heiminum í dag. „Okkar lausnir passa vel inn í þeirra vöruframboð og við höfum nú þegar fengið góð viðbrögð hjá nokkrum af þeirra lykilviðskiptavinum. Nú stendur yfir vinna við að þýða myndböndin yfir á tíu tungumál,“ segir Ragnar í samtali við Markaðinn. Notendur AwareGo nálgast eina milljón út um allan heim en stærstu viðskiptavinirnir eru GE, Barclays og Credit Suisse. Ragnar segir að næsta skref hjá fyrirtækinu verði að gera vöruna skalanlegri. Það þýðir að útbúa hana til þess að hægt sé að selja hana á internetinu í stað þess að fyrirtækið verði að afgreiða hverja einustu pöntun. Með því verði auðveldara að afgreiða minni og meðalstór fyrirtæki. Þá vill Ragnar leggja meiri áherslu á og setja meiri peninga í markaðssetningu. Það þýðir að geta farið á sýningar og keypt auglýsingaborða og ráðist í vörumerkjaþróun. Hingað til hafi fyrirtækið selt vöru sína í gegnum persónulegt tengslanet sem hafi verið myndað á netinu. „Við viljum leggja svolitla áherslu á það, að gera okkur svolítið sýnilegri,“ segir Ragnar.
Mest lesið Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Viðskipti innlent Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Neytendur Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Viðskipti innlent Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Viðskipti innlent Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Atvinnulíf Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Neytendur Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Viðskipti innlent Jóhanna tekur við sem forstjóri Viðskipti innlent Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Sjá meira