Gjaldþrotum fækkaði um 27% árið 2015 ingvar haraldsson skrifar 1. febrúar 2016 09:28 Gjaldþrotum fer fækkandi.
Gjaldþrotum einkahlutafélaga á árinu 2015 fækkaði um 27% frá fyrra ári samkvæmt því sem fram kemur á vef Hagstofunnar. Alls voru 587 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á árinu, samanborið við 799 árið áður. Hlutfallslega fækkaði gjaldþrotum á árinu 2015 mest í fjármála- og vátryggingarstarfsemi, þar sem þau voru 32 árið 2015 borið saman við 56 árið 2014 eða um 43%. Gjaldþrotum fækkaði í öllum helstu atvinnugreinabálkum milli áranna 2014 og 2015. Hlutfallslega fækkaði þeim hægast í fasteignaviðskiptum, eða um 8% milli ára, úr 80 gjaldþrotum í 74. Ef skoðuð er skipting á gjaldþrotum eftir landsvæði sést að gjaldþrotum fækkaði hlutfallslega mest á Norðurlandi eystra, þar sem 12 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2015, borið saman við 43 árið áður eða um 72%. Mest hlutfallsleg fjölgun gjaldþrota milli ára var á Suðurlandi, þar sem 63 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta árið 2015, borið saman við 49 árið áður sem er fækkun um 29%.Gjaldþrotum fækkaði verulega milli ára.mynd/hagstofanNýskráningum einkahlutafélaga á árinu 2015 fjölgaði um 16% frá árinu 2014. Alls voru 2.368 ný félög skráð á árinu, borið saman við 2.050 árið áður. Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum, þar sem þeim fjölgaði milli ára úr 222 í 352, eða um 59% frá fyrra ári. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum fjölgaði má nefna byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð þar sem nýskráningum fjölgaði úr 223 í 292 og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgunin var úr 131 í 169 nýskráningar. Mest hlutfallsleg fækkun nýskráninga árið 2015 var í upplýsingum og fjarskiptum, eða um 8% borið saman við fyrra ár (úr 185 nýskráningum í 171). Ef skoðuð er skipting á nýskráningum einkahlutafélaga og hlutafélaga milli landshluta árið 2015 sést að þeim fjölgaði hlutfallslega mest á Vesturlandi, þar sem 81 félag var nýskráð árið 2015, borið saman við 57 nýskráningar árið 2014, um 42%. Mestur hlutfallslegur samdráttur á nýskráningum milli ára var á Vestfjörðum, þar sem 34 félög voru nýskráð árið 2015, borið saman við 46 árið áður sem samsvarar 26% fækkun.Nýskráningum fer fjölgandi.mynd/hagstofan
Mest lesið Bændur æfir vegna pitsaostsins Viðskipti innlent Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Viðskipti innlent Fær ekki endurgreitt eftir misheppnaða norðurljósaferð Neytendur Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Viðskipti innlent Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Viðskipti innlent Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Viðskipti innlent Nostradamus í atvinnulífinu: Tíu dæmi um breytingar í daglegu lífi Atvinnulíf Jóhanna tekur við sem forstjóri Viðskipti innlent Taki stöðuna alvarlega og hækki ekki verð umfram verðbólgumarkmið Neytendur Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri „Fyrir okkur eru flugferðir ekki lúxus heldur lífæð“ Wolt á blússandi siglingu á meðan sendlar lýsa skertum kjörum Framkvæmdastjóri kveður Nóa Siríus Ungir fatasalar möluðu gull Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Sjá meira