Kvika keypti jeppann hans Skúla Aðalsteinn Kjartansson skrifar 1. febrúar 2016 14:30 Skúli segist ekki vita til þess að hafa selt Kviku aðrar eignir. Vísir/Ernir
Skúli Mogensen, fjárfestir og stjórnarmaður í Kviku banka, sem áður hét MP banki, seldi Mercedes Benz M-class bifreið sína til bankans árið 2011. Þetta staðfesta gögn úr ökutækjaskrá yfir feril ökutækisins. Samskonar bíll og forstjórinn fékk til afnota.Wikipedia/Bull-DoserSkúli átti bifreiðina á tímabilinu 28. ágúst 2009 til 16. desember árið 2011, þegar Kvika keypti af honum bílinn, samkvæmt ökutækjaskrá. Á síðasta ári var bíllinn svo seldur út úr bankanum en síðan þá hefur hann verið seldur aftur og inn í eignarhaldsfélag í Mosfellsbæ.Milljóna jeppi Um er að ræða Mercedes Benz ML 63 AMG jeppabifreið sem í dag er metin á bilinu 6,5 til 10 milljónir króna, miðað við upplýsingar um sambærilega bíla á bílasölum landsins. Bíllinn er fyrst skráður 1. janúar árið 2007 en fyrsti eigandi kaupir hann í lok maí árið 2008. Skúli keypti hlut í bankanum í apríl árið 2011 og liðu átta mánuðir þangað til kaupsamningur var gerður við bankann um að hann myndi kaupa af honum Benzinn. Í millitíðinni skipti MP banki um forstjóra og Sigurður Atli Jónsson, núverandi bankastjóri Kviku, tók við.Bankastjórinn vill skoða málið Sigurður Atli, forstjóri bankans, vildi ekkert tjá sig um málið og sagðist vilja skoða það áður en hann tjáir sig. Hann vildi heldur ekki svara spurningum fréttamanns um hvort bankinn hafi keypt aðrar eignir stjórnarmanna eða hluthafa bankans. Sigurður Atli er forstjóri Kviku.Vísir/AntonÞá ítrekaði hann að hann vildi skoða málið áður en hann tjáði sig við fréttamann þegar heimildir fréttastofu um að hann sem bankastjóri MP banka hafi haft bílinn til afnota voru bornar undir hann. „Þú hlýtur að skilja það,“ sagði hann.Heldur að bankastjórinn hafi fengið bílinn Skúli staðfesti hins vegar að hann hafi selt bílinn og sagði að það hafi verið gert með samþykki stjórn bankans. „Ég held að bankastjóri bankans hafi fengið afnot af þessum bíl í kjölfarið. Þetta fór fram í gegnum bílasölu, fengum mat á bílinn og það bara selt á markaðsvirði eins og það lá fyrir þá,“ segir hann. „Svo það sé nú alveg skýrt, ég skil nú ekki alveg hvað þú ert að grafa eða fiska eftir, en þetta var allt uppi á borði. Það var lagt fyrir mat á bílnum, það er að segja verðmat frá óháðum aðila, og allt gert á yfirborðinu í þeim efnum,“ segir Skúli. Hann segist aðspurður ekki vita til eða muna eftir að hafa selt aðrar eignir til bankans.
Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira