Reykjanesbær óskar ekki eftir skipun fjárhaldsstjórnar Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. febrúar 2016 15:16 vísir/gva
Reykjanesbær hefur ákveðið að leita ekki eftir því, að svo komnu máli, að bænum verði skipuð fjárhagsstjórn. Þetta segir Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri í tilkynningu til fjölmiðla. Í Fréttablaðinu kom fram í gær að Reykjanesbær hafi veitt stærsta kröfuhafa Reykjanesbæjar, sem eru um leið kröfuhafar Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. frest til dagsins í dag til þess að bregðast við tillögu Reykjanesbæjar um afmörkun á skuldavanda sveitarfélagsins. Þetta var svo staðfest með tilkynningu til Kauphallarinnar síðar um daginn. Kröfuhafarnir eru Glitnir HoldCo ehf. f.h. Ríkissjóðs Íslands, Landsbankinn og Íslandsbanki. Í tilkynningu til fjölmiðla núna kemur fram að viðræður við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. hafi skilað árangri og aðilar sammælst um umfang skuldavanda sveitarfélagsins. Í kjölfarið muni vinna við fjárhagslega endurskipulagningu Reykjanesbæjar og stofnanna þess halda áfram. Rætt verði við aðra kröfuhafa bæjarfélagsins og stofnana þess á grundvelli viðræðna við kröfuhafa Eignarhaldsfélagsins Fasteignar ehf. Kapp verður lagt á að ljúka þeim eins fljótt og auðið er. „Viðræðum síðustu daga hefur miðað í rétta átt og höfum við ákveðið að halda þeim áfram. Því verður ekki leitað eftir því, að svo komnu máli, að Reykjanesbæ verði skipuð fjárhagsstjórn“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri.
Mest lesið Skipulagsbreytingar hjá Símanum Viðskipti innlent Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Atvinnulíf Advania lýkur kaupum á Evolv Viðskipti innlent Fundi frestað til morguns Viðskipti innlent Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Viðskipti innlent Klíník og klíník í eina sæng Viðskipti innlent Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Viðskipti innlent Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Viðskipti innlent Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Viðskipti innlent „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Málmhlutur í maís Tryggja gegn frjósemisvanda fyrst félaga Jón Þór nýr yfirlögfræðingur Landsbankans Enn ríður Indó á vaðið „Við erum komin með hæstu laun í Evrópu“ „Þyngir enn frekar rekstur fyrirtækja og stöðu heimila“ Stjórnendur keyptu á 83 milljónir og seldu á 195 milljónir Bein útsending: Rökstyðja hækkun stýrivaxta Jónína nýr forstöðumaður hjá Olís Sjá meira