„Ferðasjúki barþjónninn“ í varðhaldi þar til dómur fellur í Hæstarétti Bjarki Ármannsson skrifar 9. febrúar 2016 20:00 Rúm átta ár eru síðan Fokin hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa svikið tæpa milljón út úr Icelandair. Vísir/GVA
Eistneska ríkisborgaranum Konstantin Deniss Fokin, sem hlaut í síðasta mánuði hálfs árs fangelsisdóm fyrir fjársvik við Héraðsdóm Reykjaness, hefur verið gert að sæta gæsluvarðhaldi þar til dómur fellur í máli hans í Hæstarétti. Hann mun þó ekki sæta varðhaldi lengur en til 31. mars næstkomandi. Fokin hlaut dóm fyrir að hafa svikið út farmiða í flug á vegum Icelandair fyrir um 327 þúsund íslenskar krónur í júlí í fyrra. Rannsókn á öðrum meintum brotum Fokin stendur enn yfir en í því máli er honum meðal annars gert að sök að hafa svikið mikið magn útivistarfatnaðar úr verslunum á meðan hann sætti farbanni hér á landi vegna rannsóknar fjársvikamálsins.Hæstiréttur staðfesti gæsluvarðhaldið yfir Fokin í dag. Í úrskurði Héraðsdóms Reykjaness frá því á föstudag segir að nauðsynlegt þyki að hann sæti áfram varðhaldi þar til dómur fellur í Hæstarétti, meðal annars þar sem hann hafi engin tengsl við nokkurn mann hér á landi. Af þeim sökum telji lögregla hættu á að hann muni reyna að komast úr landi gangi hann laus. Fokin hefur áður hlotið dóma hér á landi, í heimalandi sínu og í öðrum Evrópuríkjum. Rúm átta ár eru síðan Fokin, sem nefndur var „ferðasjúki barþjónninn“ í umfjöllun Vísis árið 2007, hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir að hafa svikið tæpa milljón út úr Icelandair. Bókaði hann þá flugmiða á netinu með stolnum greiðslukortanúmerum sem hann komst yfir við störf á bar í London.
Tengdar fréttir „Ferðasjúki barþjónninn“ var ekki spenntur fyrir að koma aftur til Íslands Dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að svíkja fé af Icelandair. 11. janúar 2016 11:47 Ferðasjúki barþjónninn áfram í varðhaldi vegna meintra auðgunarbrota Konstantin Deniss Fokin, sem var fyrir helgi dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir fjársvik, var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í öðru máli. 11. janúar 2016 18:45 Fingralangur fjársvikari og barþjónn í gæsluvarðhaldi fram á nýtt ár „Ferðasjúki barþjónninn“ Konstantin Deniss Fokin sneri aftur til Íslands í sumar og virðist hafa tekið upp fyrri iðju. 15. desember 2015 14:46 Mest lesið Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Innlent Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Innlent Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Innlent Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Innlent Fleiri fréttir Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Flókið verkefni og mikið tjón í Kringlunni Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Eldur í Kringlunni og Kristján Loftsson um hvalveiðileyfið Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Héldu fyrst að þetta væri brunaæfing Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Eldur logar í þaki Kringlunnar Björgunarsveit kölluð út í Þórsmörk Áhyggjur af vanda drengja í menntakerfinu óþarfar Sjá meira
„Ferðasjúki barþjónninn“ var ekki spenntur fyrir að koma aftur til Íslands Dæmdur í hálfs árs fangelsi fyrir að svíkja fé af Icelandair. 11. janúar 2016 11:47
Ferðasjúki barþjónninn áfram í varðhaldi vegna meintra auðgunarbrota Konstantin Deniss Fokin, sem var fyrir helgi dæmdur í sex mánaða fangelsi fyrir fjársvik, var í dag úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald í öðru máli. 11. janúar 2016 18:45
Fingralangur fjársvikari og barþjónn í gæsluvarðhaldi fram á nýtt ár „Ferðasjúki barþjónninn“ Konstantin Deniss Fokin sneri aftur til Íslands í sumar og virðist hafa tekið upp fyrri iðju. 15. desember 2015 14:46