Ísland vann Noreg í fyrsta leik sínum á EM í Póllandi en tapaði svo fyrir Hvíta-Rússlandi og Króatíu, þar sem strákarnir fengu á sig samtals 76 mörk í leikjunum tveimur.
„Að mínu viti var þetta fyrir séð,“ sagði Guðjón í viðtali við Bítið á Bylgjunni á morgun en hann varaði við slæmu gengi íslenska liðsins fyrir EM í Póllandi.
„Mér fannst allur aðdragandi mótsins mjög undarlegur. Við spiluðum fjóra æfingaleiki fyrir mótið og þar voru menn komnir á villugötur, sérstaklega í leiknum gegn Þýskalandi.“
Sjá einnig: Gjaldþrotið gegn Króötum setur framtíð landsliðsins í uppnám
Ísland vann þó þriggja marka sigur á Þýskalandi í lokaleik sínum fyrir EM en Guðjón segir að leikurinn þar á undan, þar sem Ísland tapaði fyrir Þýskalandi, hafi verið besti æfingaleikur Íslands.
„En það var enginn sem greindi þetta rétt. Við Íslendingar erum oft bestir í að greina hlutina eftir á og í aðdraganda stórmótanna vilja allir vera bestu vinir aðal. Það þorir enginn að segja hlutina eins og þeir eru.“

Hann segir að íslenska liðið sé í sömu stöðu nú og eftir HM í Katar í fyrra. Spilamennskan í Póllandi hafi verið sú sama.
„Í framhaldi af því fór landsliðsnefnd HSÍ í naflaskoðun og skoðaði árangur íslenska liðsins í Katar mjög vel. Ég sjálfur átti símafundi með nefndarmanni sem þá var og benti á hluti sem mér fannst að betur mætti fara.“
Sjá einnig: Framtíðarhorfur strákanna í höndum Dags og Rússa
„Og benti á að það sem koma skyldi ef ekki yrði farið í aðgerði og það er einmitt það sem við vorum að horfa á í Póllandi. Það var tími til að skoða þjálfarateymið eftir HM í Katar og skipta hreinlega um manninn í brúnni. Einfaldlega vegna þess að í því móti sá maður að liðinu leið ekki vel inni á vellinum og það var nákvæmlega sama staða uppi núna.“
„Ég tek það fram að Aron Kristjánsson er mjög hæfur þjálfari en svo virðist sem hann ekki hafa náð tökum á því sem var að gerast. Það er stundum afskaplega erfitt að vera með mjög leikreynt lið og ná þeim upp á tærnar. Það er mikil list að fá þá til að gera rétt.“

„En eftir þá leiki dettum við í sama farið og stemningin minnkar. Það sem við sáum svo í Póllandi var allt leikskipulagið í molum, bæði í vörn og sókn. Það var sama hvert var litið og við höfðum sjaldan eða aldrei plan B.“
Sjá einnig: Aron vildi ekki ræða framtíðina
Guðjón saknaði þess að sjá ekki mismunandi liðsuppstillingu og leikáætlun gegn mismunandi liðum á EM í Póllandi og mismunandi vörnum. Enn fremur segir hann að leikurinn gegn Noregi hafi þrátt fyrir sigurinn ekki verið nógu góður, sérstaklega í sókn, og gaf vísbendingar um framhaldið.
„Svo er það bara þannig í svona mótum að ef þú hefur ekki vörn eða markvörslu þá gerist ekki neitt. Vandamálin voru bara svo mýmörg.“
Hlustaðu á viðtali við Guðjón í heild sinni hér fyrir ofan.