Omeyer frábær þegar Frakkar jörðuðu Króata Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 23. janúar 2016 18:46 Thierry Omeyer átti frábæran leik gegn Króötum. Hér ver hann eitt sextán skota sinna í leiknum. vísir/afp
Frakkar eru komnir með sex stig í milliriðli 1 á EM í Póllandi eftir stórsigur á Króatíu í dag. Lokatölur 32-24, Frakklandi í vil.Frakkar töpuðu fyrir Póllandi í lokaleik A-riðils en það virðist hafa vakið þá til lífsins því þeir hafa nú unnið tvo stórsigra í röð. Á fimmtudaginn rústaði liðið Hvíta-Rússlandi, 34-23, eftir að hafa verið 20-5 yfir í hálfleik og í dag urðu Króatar fyrir barðinu á franska liðinu. Leikurinn var jafn framan og eftir rúmlega 20 mínútur var staðan 10-9, Frökkum í vil. En Evrópumeistararnir gáfu í á lokakafla fyrri hálfleiks og leiddu með sex mörkum í hálfleik, 16-10. Frakkar gáfu ekkert eftir í seinni hálfleik, skoruðu sex af sjö fyrstu mörkum hans og komust 11 mörkum yfir, 22-11. Eftir þetta var sigurinn aldrei í hættu en á endanum munaði átta mörkum á liðunum, 32-24. Luc Abalo var markahæstur í liði Frakklands með sex mörk en Michael Guigou kom næstur með fimm mörk. Maður leiksins var hins vegar markvörðurinn Thierry Omeyer sem varði 16 skot í leiknum (40%) og skoraði auk þess eitt mark. Domagoj Duvnjak skoraði fimm mörk fyrir Króata sem eru með fjögur stig í milliriðlinum.
EM 2016 karla í handbolta Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Utan vallar: Fólk með ADHD má spila íþróttir Sport „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Það er ekki hægt að reka allar þessar pissudúkkur Sport „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Fleiri fréttir Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Sjá meira