Dómurinn taldi framburð vitnis í Chesterfield-máli óstöðugan Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. janúar 2016 07:00 Þeir Hreiðar Már Sigurðsson og Sigurður Einarsson voru ákærðir í svokölluðu Chesterfield-máli. vísir/gva
Hreiðar Már Sigurðsson, Sigurður Einarsson og Magnús Guðmundsson voru allir sýknaðir í svokölluðu Chesterfield-máli í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þremenningarnir voru allir á meðal æðstu stjórnenda Kaupþings sem féll í október 2008. Þeir voru ákærðir fyrir umboðssvik. Ákæruvaldið taldi að þeir hefðu misnotað aðstöðu sína sem stjórnendur Kaupþings í 510 milljóna evra lánveitingum til nokkurra eignarhaldsfélaga sem voru í eigu vildarviðskiptavina bankans. Lánin voru veitt til að kaupa lánshæfistengd skuldabréf af Deutsche Bank sem tengd voru skuldatryggingarálagi Kaupþings. Markmiðið var að lækka skuldatryggingarálagið. Dómurinn tekur annars vegar afstöðu til ákæruliða eitt og þrjú þar sem fjallað er um lán til félaganna vegna skuldabréfakaupanna og svo hins vegar til ákæruliða tvö og fjögur þar sem fjallað er um lán sem veitt voru til að mæta veðköllum Deutsche Bank. Niðurstaða dómsins er að lánin hafi ekki verið veitt án trygginga og þar af leiðandi hafi Hreiðar, Sigurður og Magnús ekki stefnt fé bankans í verulega hættu. Hvað varðar lán sem veitt voru félögunum vegna veðkalla Deutsche Bank þegar skuldatryggingarálag Kaupþings hækkaði telur dómurinn að sama skapi ósannað að með þeim hafi þremenningarnir misnotað aðstöðu sína og stefnt fé bankans í verulega hættu. Vikið er að því í dómnum að lykilvitni í málinu, Halldór Bjarkar Lúðvígsson, hafi verið óstöðugur í þeim skýrslum sem hann hefur gefið í málinu, annars vegar undir rannsókn málsins og hins vegar fyrir dómi. Verði að hafa þetta í huga þegar sönnunargildi skýrslna Halldórs Bjarkars er metið.
Tengdar fréttir Hreiðar Már, Magnús og Sigurður sýknaðir Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þá Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg og Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, af ákæru í CLN-málinu svokallaða. 26. janúar 2016 09:00 Mest lesið Ferðamaður fannst látinn og þriggja saknað á eyjum Grikklands Erlent Hver er þessi 28 ára maður sem gæti orðið forsætisráðherra Frakka? Erlent „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ Innlent Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Innlent „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Innlent Netanjahú leysir stríðsráðið upp Erlent Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní Innlent Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Innlent Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Innlent Rafmagnslaust í Mosfellsbæ Innlent Fleiri fréttir Rafmagnslaust í Mosfellsbæ Eldur kviknaði í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði „Þetta var bara eins og hryðjuverk“ „Hvernig getur sama fólk snúist svona í skoðunum sínum?“ Sælkerasveppir ræktaðir í gróðrarstöð í Mosfellsdal Óttast að Quang Le hafi samband við þolendur Vitni segir bílinn hafa ekið hratt fram úr sér skömmu fyrir slysið Altjón í tíu búðum Kringlunnar og undirbúningur fyrir þjóðhátíðardaginn Oddviti Garðarbæjarlistans hættir í Samfylkingunni Neita að borga tjón eftir að hafa mokað snjó yfir bíl Stútfull hátíðardagskrá um allt land á 17. júní „Þetta er stórtjón fyrir okkur“ Parísarhjól sprettur upp við höfnina Stefna á að opna Kringluna á þriðjudag Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028 Isavia stefnir að því að hefja gjaldtöku í vikunni Það verði „drulluerfitt“ að rífa VG úr lægðinni Jarðaberjarækt í grænum iðngarði í Helguvík Búðareigendur aðstoðuðu slökkviliðsmenn Flúðu vettvang eftir harðan árekstur Slökkvistarf í Kringlunni og staða Vinstri grænna Laxateljari greinir eldislaxa frá villtum löxum Ferðaþjónustan, þingmálin og Running Tide í Sprengisandi Björgunarsveitir sinntu reiðslysi og gönguslysi í gær Myndir: Allt á floti í Kringlunni Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Konungsskip Dana í Reykjavík „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Safnað fyrir gróðurskála á Kirkjubæjarklaustri „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Sjá meira
Hreiðar Már, Magnús og Sigurður sýknaðir Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þá Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings, Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg og Sigurð Einarsson, fyrrverandi stjórnarformann Kaupþings, af ákæru í CLN-málinu svokallaða. 26. janúar 2016 09:00