Meirihluti vill að Steinþór segi upp hjá Landsbankanum Heimir Már Pétursson skrifar 28. janúar 2016 19:30
Meirihluti þeirra sem tók afstöðu í könnun fréttastofu 365 finnst að bankastjóri Landsbankans eigi að segja upp störfum vegna Borgunarmálsins svokallaða. Meirihluti stuðningsmanna Sjálfstæðisflokksins telur hins vegar ekki að bankastjórinn þurfi að víkja. Könnunin var gerð á þriðjudag og miðvikudag og spurt: Finnst þér að Steinþór Pálsson bankastjóri Landsbankans eigi að segja upp störfum vegna Borgunarmálsins? Hringt var í 1.158 manns og var svarhlutfall 69,2 prósent.Karlar eru frekar á því að bankastjórinn eigi að segja upp starfi sínu en konur, eða 42 prósent karla á móti 34 prósentum kvenna.Þrjátíu og átta prósent svarenda sögðu já en tuttugu og tvö prósent nei. Allmargir voru óákveðnir eða 31% og 8% prósent neituðu að svara. Karlar eru frekar á því að bankastjórinn eigi að segja upp starfi sínu en konur, eða 42 prósent karla á móti 34 prósentum kvenna. Meirihluti er fyrir uppsögn bankastjórans hjá stuðningsmönnum allra flokka á Alþingi nema hjá stuðningsmönnum Sjálfstæðisflokksins. Fimmtíu og sex prósent þeirra telja að bankastjórinn þurfi ekki að segja upp störfum en 53 prósent stuðningsmanna hins stjórnarflokksins, eða Framsóknar, telja að bankastjórinn ætti að segja upp störfum.Skoðanir fólks á málinu dreifast svipað eftir kjördæmum og er meirihluti fólks í þeim öllum á því að bankastjórinn ætti að taka pokann sinn.Svör stuðningsmanna Bjartrar framtíðar eru varla marktæk vegna þess hversu fáir gefa sig upp á flokkinn (50% sögðu já), 62 prósent kjósenda Samfylkingarinnar, 67 prósent Vinstri grænna og 73 prósent stuðningsmanna Pírata finnst að Steinþór ætti að segja upp störfum. Skoðanir fólks á málinu dreifast svipað eftir kjördæmum og er meirihluti fólks í þeim öllum á því að bankastjórinn ætti að taka pokann sinn. Meirihlutinn er þó minnstur í Reykjavík, eða 59 prósent en stærstur í Norðvesturkjördæmi þar sem 81 prósent íbúanna finnst að bankastjórinn ætti að segja upp störfum. Þá er eldra fólk ákveðnara í afstöðu sinni en yngra fólkið, 34 prósent 18 til 49 ára finnst að bankastjórinn ætti að hætta en 43 prósent þeirra sem eru 50 ára og eldri finnst að Steinþór Pálsson ætti að segja upp störfum.
Mest lesið Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Viðskipti innlent Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Fleiri fréttir Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Sjá meira