Gríðarlegur innlagnaþungi og útskriftir ganga hægt sunna karen sigurþórsdóttir skrifar 11. janúar 2016 11:04
Þrátt fyrir að ávallt sé gert fyrir miklum önnum á Landspítalanum í upphafi hvers árs hefur nánast keyrt um þverbak síðustu daga, að sögn Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans. Hann segir innlagnaþunga á spítalanum gríðarlegan og að útskriftir gengið hægar en æskilegt væri. „Við vinnum hörðum höndum þessa dagana að tillögum um leiðir til að létta á þessum vanda sem blasir við til næstu vikna og mánaða. Öll vitum við að aðgerðir til lengri tíma eru nauðsynlegar en á þessum tímapunkti verðum við að bregðast við bráðri stöðu,“ segir Páll í forstjórapistli sínum. Páll segir algengt að útskriftir gangi hægt, en bindur vonir við að hægt verði að taka á þeim vanda með auknum fjárframlögum sem nýta eigi í fráflæðisvanda Landspítala. „Einkum til að taka a þeim erfiðleikum sem því eru stundum samfara þegar útskrifa á eldra fólk sem lokið hefur meðferð á Landspítala.“ Þá segir hann að nýlega hafi verið tekið upp sameiginlegt, daglegt, stöðumat á spítalanum. Um sé að ræða stutta og markvissa tilkynningafundi þar sem farið sé yfir þá öryggisþætti sem mikilvægastir séu fyrir rekstur deilda Landspítala. Markmið þeirra sé að auka öryggi starfsfólks og sjúklinga, bæta upplýsingaflæði, auka aðstæðuvitund og stuðla að fyrirbyggjandi aðgerðum eftir því sem við eigi. „Fyrstu fundirnir hafa nýst vel við þær erfiðu aðstæður sem nú eru hjá okkur og ég bind væntingar við frekari þróun þessara funda.“
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Innlent Fleiri fréttir Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Sjá meira