Arnar Pétursson í tímabundið leyfi frá þjálfun ÍBV | Grunur um einelti Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. janúar 2016 21:30 Arnar Pétursson. Vísir/Vilhelm
Handknattleiksdeild ÍBV sendi frá sér yfirlýsingu í kvöld þar sem kemur fram að þjálfari meistaraflokksliðs ÍBV, Arnar Pétursson, hafi tekið sér tímabundið leyfi frá þjálfun í samráði við við forsvarsmenn ÍBV. Ástæða þessarar ákvörðunar er sú að það er grunur er um einelti innan æfingahóps félagsins. Arnar tók við liðinu af Gunnari Magnússyni sem gerði ÍBV að Íslandsmeisturum með Arnari árið 2014 og bikarmeisturum 2015. Arnar Pétursson og Gunnar þjálfuðu Eyjaliðið fyrst saman en Gunnar var síðan einn með liðið tímabilið 2014-15. ÍBV-liðið er í fimmta sæti Olís-deildar karla en liðið er tólf stigum á eftir toppliði Hauka sem Gunnar þjálfar. Eyjaliðið hefur aðeins unnið 2 af síðustu 10 deildarleikjum sínum og þeir sigrar komu á móti tveimur neðstu liðum deildarinnar.Fréttatilkynningin frá ÍBV sem mátti finna inn á eyjar.net Arnar Pétursson, þjálfari meistaraflokks karla í handbolta, hefur ákveðið að taka sér tímabundið leyfi frá þjálfun. Ákvörðun þessi er tekin í fullu samráð við forsvarsmenn ÍBV en ástæða hennar er sú að grunur er um einelti innan æfingahóps félagsins. Tekið skal fram að Arnar tengist því máli ekki sem þjálfari en hann taldi rétt að víkja á meðan utanaðkomandi fagaðili væri fenginn til að gera formlega eineltisathugun og leiðbeina félaginu um framhaldið. Við viljum beina því til fólks að gefa forráðamönnum félagsins og fagaðilum ráðrúm til að vinna úr þessu máli og að aðgát skal höfð í nærveru sálar.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira