Reisa verslunarkjarna í námunda við Keflavíkurflugvöll Atli Ísleifsson skrifar 5. janúar 2016 08:55 Í þjónustukjarnanum er gert ráð fyrir meðalstórri matvöruverslun, veitinga- og kaffihúsum, ferðatengdri þjónustu og annarri þjónustustarfsemi. Mynd/Kaupfélag suðurnesja
Kaupfélag Suðurnesja ætlar að reisa verslunar- og þjónustukjarna skammt frá Keflavíkurflugvelli. Alls mun á annað hundrað manns starfa í kjarnanum sem hefur fengið nafnið Rósaselstorg. Gert er ráð fyrir að framkvæmdir hefjist fljótlega og kjarninn verði tekinn í notkun snemma á næsta ári. Í tilkynningu segir að þjónustukjarninn verði á 20 þúsund fermetra lóð við síðasta hringtorgið sem ekið er í gegnum áður en komið er að flugstöðinni. Unnið er að uppbyggingunni í samvinnu við sveitarfélagið Garð en byggingarsvæðið er í landi þess.Nettó-verslun, kaffihús og bensínstöðÍ þjónustukjarnanum er gert ráð fyrir meðalstórri matvöruverslun undir merkjum Nettó, veitinga- og kaffihúsum, ferðatengdri þjónustu og annarri þjónustustarfsemi. Einnig verður þar að finna bensínstöð, en gert er ráð fyrir að samanlagður fermetrafjöldi bygginga á lóðinni verði að lágmarki tvö þúsund fermetrar í fyrsta áfanga. Skúli Skúlason, stjórnarformaður Kaupfélags Suðurnesja, segir að sú mikla aukning sem orðið hafi á umsvifunum í flugstöðinni kalli á mikla uppbyggingu, bæði á flugvellinum og í næsta nágrenni hans. „Ekki aðeins hefur fjöldi ferðamanna þrefaldast á skömmum tíma heldur hefur starfsmönnum sem sækja vinnu í flugstöðinni fjölgað um mörg hundruð. Þarna starfa í dag tvö þúsund manns og um þetta ákveðna hringtorg fara nær allir ferðamennirnir okkar, bæði þegar þeir koma til landsins og þegar þeir fara. Rósaselstorgi er ætlað að þjóna mörgum ólíkum hópum s.s. ferðamönnum og starfsfólki flugstöðvarinnar en einnig þeim fjölmörgu sem útlit er fyrir að starfa muni í Helguvík. Tilkoma þess mun einnig vonandi verða til þess að fleiri gefa sér tíma til að skoða það sem er í boði á svæðinu áður en haldið er áfram til höfuðborgarinnar eða til annarra landshluta. Kaupfélag Suðurnesja á og rekur hátt í fimmtíu verslunarhúsnæði um land allt og við teljum okkur því vera réttan aðila til að ráðast í þetta brýna verkefni að bæta framboð verslunar og þjónustu á þessum stað,“ segir Skúli.
Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Sjá meira