Liverpool slapp með jafntefli við D-deildarlið Exeter Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. janúar 2016 21:45 Jerome Sinclair fagnar marki sínu í kvöld. Vísir/Getty
Liverpool og Exeter City þurfa að mætast að nýju í 3. umferð ensku bikarkeppninnar eftir 2-2 jafntefli á heimavelli Exeter City í kvöld. D-deildarlið Exeter City komst tvisvar yfir í leiknum en Liverpool náði að jafna metin í tvígang. Liðin þurfa því að mætast að nýju á Anfield Road, heimavelli Liverpool. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, sem stýrða þarna liðinu í fyrsta skipti í ensku bikarkeppninni gerði ellefu breytingar á byrjunarliði sínu frá því í síðasta leik. Liverpool var með algjört varalið og í byrjunarliðinu var það bara Christian Benteke sem hafði spilað meira en fimm leiki á tímabilinu. Klopp var í miklum vandræðum með leikmenn enda þrettán leikmenn á sjúkalistanum. Exeter City fékk draumabyrjun þegar Tom Nichols kom liðinu í 1-0 strax á 9. mínútu en hinn 19 ára gamli Jerome Sinclair jafnaði metin þremur mínútum síðar. Lee Holmes kom Exter aftur yfir í lok fyrri hálfleiks þegar hann skoraði beint úr aukaspyrnu án þess að Adam Bogdan kæmi vörnum við í marki Liverpool. Brad Smith tryggði Liverpool jafntefli og annan leik þegar hann jafnaði metin á 72. mínútu. Brad Smith hafði heppnina með sér því varnarmaður Exeter mistókst að koma boltanum frá. Liverpool náði ekki að bæta við marki og tryggja sér sigurinn en slapp við vandræðalegt tap. Það eru þó ekki góðar fréttir fyrir meiðslahrjáð lið Liverpool að fá einn leik til viðbótar en nóg að gera hjá lærisveinum Jürgen Klopp í deild, bikar, deildabikar og Evrópukeppni.
Enski boltinn Mest lesið „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Spike Lee vill ekki sjá sína menn með Trump Körfubolti Óhuganlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Uppgjörið: Valur – Keflavík 87-70 | Valsarar halda áfram á sigurbraut Körfubolti „Ég er með fullkomnunaráráttu“ Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Sara Rún öflug í sigri KR Körfubolti Stjarnan skein skært gegn nýliðunum Körfubolti „Þetta er svona Pollýönnuleikur akkúrat núna“ Körfubolti Fleiri fréttir Annar sigur Everton á Newcastle á innan við viku Man Utd með nærri 25 prósent líkur á falli Aston Villa hættir við málsókn gegn Carragher Ólíklegt að leikmenn Man United séu með fallákvæði í samningum Orða varnarmann Barcelona við Manchester United Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Eiður fann til með Liverpool Eiður með gæsahúð á Anfield Ekki unnið á Anfield í 14 ár Hildur skoraði í sigri Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Brentford bjargaði United frá fallsæti Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sjáðu mörkin: Varnarmenn United eins og keilur og rautt spjald Martínez Chelsea 2-0 Man. Utd | Negldi Martínez síðasta naglann í kistu Carrick? Carragher biðst afsökunar: „Klaufalegt og rangt“ Tevez vildi hefna sín á Sir Alex Ferguson „Auðvitað er markmiðið að slá markametið“ Sjá meira