„Getum ekki endalaust borgað með þessu“ Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 10. september 2016 19:30
Sauðfjárbændur hafa áhyggjur af stöðu greinarinnar eftir tilkynningu um að afurðaverð til þeirra verði lækkað verulega. Bóndi á Suðurlandi segir tekjuskerðinguna svo mikla að ungt fólk í greininni sé farið að hugsa sinn gang, ekki sé endalaust hægt að borga með framleiðslunni. „Þetta er ekki gott, hvorki fyrir okkur né aðra í greininni. Við vildum sjá hækkanir, það hefur ekki verið hækkun frá 2013,“ segir Bjarni Másson bóndi í Háholti í Skeiða - og Gnúpverjahreppi. Afurðastöðvar hafa boðað verðlækkun fyrir lambakjöt sem nemur á bilinu fimm til tólf prósentum. Samkvæmt útreikningum Landsambands Sauðfjárbænda er það tæplega 600 milljón króna tekjulækkun miðað við að framleiðsla verði sú sama og í fyrra. „Ég held að það sé klárt mál að ungt fólk sem er tilbúið að gera eitthvað annað, það bara hjóti að hugsa sinn gang. Eðli málsins samkvæmt. Það er ekkert annað að gera í stöðunni. Við erum ekki tilbúinn til þess og getum ekki endalaust tekið þetta úr okkar vasa,“ segir Bjarni. Skýringar afurðastöðvanna fyrir lækkununum eru fyrst og fremst samdráttur í útflutningi. Enn séu til um átján hundruð tonn í frystum landsins frá síðustu sláturtíð. „Ég geri nú ekki mikið úr því. Þetta er ekki meira en verið hefur undanfarin ár, og minna en í fyrra. Þá var enginn að tala um neinar birgðir eða kjötfjöll. Við teljum bara að það sé ekki okkar að taka þetta allt á okkur. Við viljum líka sjá að sláturleyfishafar sæki þessa versnandi afkomu hjá þeim inn í smávöruverslunina sem virðist geta skammtað sér arð að vild og græðir tá á fingri,“ segir Bjarni. Hann óttast afleiðingarnar fyrir greinina. „Það er enginn í þessu til að maka krókinn eða græða peninga. Þetta er ákveðið hugsjónastarf og menn hafa gaman að þessu eins og svo mörgu öðru. en þó að þetta sé skemmtilegt þá getum við ekki endalaust borgað með þessu.“
Mest lesið Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Innlent Minnir á hvernig Hitler komst til valda Innlent Hættur að hugsa bara um frið fyrst hann fékk ekki Nóbelinn Erlent Þjóðverjar yfirgefa Grænland Erlent Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Innlent Danir máttlausir gagnvart rússnesku ógninni í 20 ár Erlent „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ Innlent Tala látinna hækkar í lestarslysinu á Spáni Erlent Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Innlent „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Innlent Fleiri fréttir Bréf Trumps til Norðmanna og væringar innan VG Verkútboð í vegagerð auglýst eftir langt hlé „Þarf að klára að setja slaufu á pakkann“ „Blasir við að íslenskt launafólk var svikið“ Um tvöfalt fleiri óánægðir en ánægðir með frestun gangna Ekki rétta leiðin að kynda undir læsisstríð Mælir fyrir samgönguáætlun í dag Fann kattarhræ í margnota poka úti í hrauni Samþykktu aldrei að Sanna fengi oddvitasætið Minnir á hvernig Hitler komst til valda VG og Sanna sameina krafta sína Sala á grænlenskum á Íslandi nær tvöfaldast Ekkert athugavert við fundinn og stjórnin starfshæf Stjórnvöld „í blindflugi“ í menntamálum í rúman áratug Haldið upp á 80 ára afmæli Hveragerðis allt afmælisárið Sambandið aldrei verra: Ísland gæti bæst á listann Dæmi um að nemendur hafi aldrei mætt í leikfimi Grænlandstollar vonbrigði og verðbólga spillir kjarasamningum Stöðugleikasamningarnir gætu sprungið strax í haust Heimsmálin, Grænland, menntun og fjölmiðlun á Sprengisandi Karólína Helga skákaði sitjandi oddvita í Hafnarfirði Ísland standi með Grænlandi og Danmörku Vonar að skólarnir verði frjálsir frá símum í haust Álagning aldrei hærri: Eldsneytisverð hefði átt að lækka enn frekar Líkir kærunni við „faglega aftöku“ „Vegferð ákæruvaldsins til skammar“ Menntamálaráðherra tekur yfir hjúkrunarheimilin Fjögur handtekin á Akureyri grunuð um innbrot Viðvarandi óvissuástand bitni á langtímaáætlunum fyrirtækja Einn endaði á hliðinni og þrjú klemmdust á milli Sjá meira